Hoppa yfir valmynd
5. október 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að reglugerð um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu

Í nýlegum lögum um opinber innkaup er kveðið á um að fjármála- og efnahagsráðherra skuli setja reglugerð þar sem mælt er fyrir um gerð sérleyfissamninga til samræmis við skuldbindingar íslenska ríkisins á sviði opinberra innkaupa samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og öðrum milliríkjasamningum. Í reglugerðinni skal m.a. kveðið nánar á um gildissvið, meginreglur um veitingu og framkvæmd sérleyfa og viðmiðunarfjárhæðir vegna slíkra sérleyfissamninga.

Ráðuneytið hefur útbúið drög að reglugerð vegna innleiðingar á Evróputilskipun nr. 2014/23/EB frá 26. febrúar 2014 um gerð sérleyfissamninga, eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2016 frá 29. apríl 2016.

Áhugasömum aðilum er hér með gefinn kostur á að skila inn umsögnum um reglugerðardrögin. Að samráðsferli loknu verður reglugerðin fullunnin að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem berast.

Þess má geta að ákvæði XI. og XII. kafla laga um opinber innkaup er varða kærunefnd útboðsmála o.fl. gilda jafnframt um sérleyfissamninga sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum reglugerðarinnar.

Umsagnarfrestur er til og með 20. október 2017.

Umsagnir og athugasemdir skulu berast ráðuneytinu á: [email protected]

Drög að reglugerð um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu
yfir viðmiðunarfjárhæðum EES-svæðisins

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 23/2014/ESB frá 26. febrúar 2014 um gerð sérleyfissamninga

Directive 2014/23/EU of the European parliament and of the Council of 26 February 2014 on the award of concession contracts

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum