Hoppa yfir valmynd
6. desember 2012 Dómsmálaráðuneytið

Þrír af fimm umsækjendum hæfastir til að hljóta setningu í embætti hæstaréttardómara

Dómnefnd sem metið hefur umsækjendur um embætti setts hæstaréttardómara sem auglýst var 2. október síðastliðinn hefur lokið störfum og skilað innanríkisráðuneytinu niðurstöðu sinni. Fimm sóttu um embættið og er það niðurstaða dómnefndar að þrír séu hæfastir umsækjenda til að hljóta setningu í embættið.

Um embættið sóttu eftirtaldir:

Dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
Arnfríður Einarsdóttir, dómari við héraðsdóm Reykjavíkur
Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands
Ingveldur Einarsdóttir, dómari við héraðsdóm Reykjavíkur
Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri héraðsdóms Reykjaness

Niðurstaða dómnefndar er sú að Ása Ólafsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir og Þorgeir Ingi Njálsson séu hæfust umsækjenda til að hljóta setningu í embætti hæstaréttardómara. Segir nefndin ekki efni til að greina á milli hæfni þeirra þriggja til að gegna embætti hæstaréttardómara.

Í 2. mgr. 4. gr. a laga nr. 15/1998 um dómstóla, segir að dómnefnd skuli láta innanríkisráðherra í té skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur um embætti hæstaréttardómara. Samkvæmt ákvæðinu skal í umsögn dómnefndar tekin afstaða til þess hvaða umsækjandi sé hæfastur til að hljóta embættið, en heimilt er að setja tvo eða fleiri umsækjendur jafna.

Í 3. mgr. 4. gr. a laga nr. 15/1998 um dómstóla, kemur fram að óheimilt er að skipa í dómaraembætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, hvort heldur einn eða samhliða öðrum. Frá þessu má þó víkja ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda sem fullnægir að mati dómnefndar öllum skilyrðum 2. og 3. mgr. 4. gr. Ráðherra skal þá leggja slíka tillögu fyrir Alþingi innan tveggja vikna frá því að umsögn dómnefndar er afhent honum eða innan þess tíma frá því að Alþingi kemur næst saman eftir að umsögn er fengin og verður tillaga að vera samþykkt innan mánaðar frá því að hún er lögð fram, ella er ráðherra bundinn af umsögn dómnefndar.

Dómnefndina skipuðu Eiríkur Tómasson, Allan V. Magnússon, Guðrún Agnarsdóttir, Guðrún Björk Bjarnadóttir og Skarphéðinn Þórisson.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum