Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Stuðningur við Króatíu vegna jarðskjálftanna

Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur styrkt Rauða krossinn um 10 milljónir króna sem veittar verða til stuðnings Rauða krossinum í Króatíu í kjölfar jarðskjálfta þar í landi dagana 28. og 30. desember síðastliðinn. Að minnsta kosti sjö létust í skjálftanum og fjöldi slasaðist, auk þess sem mikil eyðilegging varð. Upptök skjálftans voru við bæinn Petrinja, suðaustur af höfuðborginni Zagreb.

Í frétt frá Rauða krossinum segir að fjármagnið nýtist Rauða krossinum í Króatíu í neyðarviðbrögðum sínum en fjöldi sjálfboðaliða veitir neyðaraðstoð og hefur aðstoðað við rýmingar á hjúkrunarheimilum og fleira. Í mars 2020 reið einnig stór skjálfti yfir Zagreb þar sem nokkurt tjón varð.

„Rauði krossinn þakkar utanríkisráðuneytinu fyrir þetta góða framlag,“ segir í fréttinni.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum