Hoppa yfir valmynd
20. desember 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 559/2018 Úrskurður

 

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 20. desember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 559/2018

Í stjórnsýslumáli nr. KNU18110029

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

 

Þann 21. nóvember 2018 barst kærunefnd útlendingamála kæra […], kt. […], ríkisborgara Indónesíu (hér eftir nefnd kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. október 2018, um að synja henni um ótímabundið dvalarleyfi.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 5. nóvember 2018. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 21. nóvember 2018. Er því ljóst að kærufresturinn, sem var til 20. nóvember 2018, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar, dags. 22. nóvember 2018, veittur frestur til 29. nóvember 2018 til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í tölvupósti til kærunefndar þann 22. nóvember 2018 greindi lögmaður kærandi frá ástæðum þess að kæra barst of seint. Í bréfinu vísar lögmaður kæranda til þess að hann hafi þann 20. nóvember sl. skannað bréf með kæru á ljósritunarvél og talið sig hafa sent hið skannaða bréf á netfang kærunefndarinnar. Daginn eftir hafi lögmaður kæranda hins vegar tekið eftir því að sendingin hefði ekki farið í gegn úr ljósritunarvélinni og hafi þá samdægurs sent inn kæruna til kærunefndar.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, sem birt var kæranda þann 5. nóvember 2018, er að finna leiðbeiningar um kæruleið og kærufresti. Mátti því kæranda vera ljóst hvaða reglur giltu um kæru til æðra stjórnvalds. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt.

Eins og áður hefur komið fram var ákvörðun Útlendingastofnunar birt kæranda þann 5. nóvember 2018 og var 15 daga kærufrestur skv. 7. gr. laga um útlendinga því til 20. nóvember 2018. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru.

Kærunefnd telur að þær athugasemdir sem færðar hafa verið fram leiði ekki til þess að afsakanlegt geti talist að kæra hafi ekki borist fyrr. Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar.

Í ljósi ofangreinds er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi veigamiklar ástæður í skilningi 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga fyrir því að kæra kæranda verði tekin til meðferðar, eða að afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist innan þess tímafrests sem áskilinn er í 7. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The Immigration Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                              Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum