Hoppa yfir valmynd
2. júní 2020 Matvælaráðuneytið

Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 1. júní 2020:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 5,5%, úr 92,74 kr./ltr í 97,84 kr./ltr.
  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 4,28%, nema smjör sem hækkar um 12%. Vegin hækkun heildsöluverðs er 4,69%.

Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur, en síðasta verðbreyting fór fram 1. janúar 2020. Við síðustu verðlagningu var gengið skemur en þróun verðlagsgrundvallar kúabús og gjaldaliða hjá afurðastöðvum gaf tilefni til. Verðhækkun 1. júní 2020 byggist á uppsafnaðri hækkun frá verðlagningu 1. september 2018, að frádreginni verðhækkun 1. janúar 2020.

Frá verðlagningu 1. september 2018 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 5,5% að frádreginni 2,5% verðhækkun í janúar 2020. Fyrir sama tímabil er reiknuð hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar afurðastöðva 3,85%, að frádreginni 2,5% verðhækkun í janúar 2020.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum