Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2023 Utanríkisráðuneytið

Mannúðarstofnanir Sameinuðu þjóðanna skora á Öryggisráðið

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga mannúðarstofnana Sameinuðu þjóðanna er skorað á Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að endurnýja samþykkt sem heimilar að mannúðaraðstoð sé veitt yfir landamæri norðvesturhluta Sýrlands í gegnum Tyrkland. Fyrri samþykkt rennur út eftir viku og segir í yfirlýsingunni að takist ekki að endurnýja hana geti það haft skelfilegar afleiðingar fyrir 4,1 milljónir einstaklinga sem búi á hlutlausum svæðum sem ekki lúta stjórn viðkomandi stjórnvalda. Meirihluti þessa fólks eru börn og konur sem þurfa nauðsynlega á aðstoðinni að halda í vetrarhörkunni sem brátt nær hámarki og í miðjum kólerufaraldri á svæðinu.

Undir yfirlýsingu skrifa leiðtogar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, OCHA, Samhæfingarskrifstofu aðgerða í SÞ í mannúðarmálum, IOM, Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar, UNHCR, Flóttamannastofnunar SÞ, WFP, Matvælaáætlunar SÞ og WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

„Afstaða okkar er skýr. Mannúðaraðstoð og öryggi aðstoðarinnar verður að tryggja svo hægt sé að ná til þeirra sem þurfa með öruggum, beinum og skilvirkum leiðum. Án landamærasamstarfs Sameinuðu þjóðanna munu milljónir einstaklinga á vergangi ekki hafa aðgengi að mat, skjóli, aðstoð til að takast á við vetraraðstæður, eftirliti, meðferð og greiningu, öruggu drykkjarvatni og vernd gegn kynbundnu ofbeldi. Takist ekki að framlengja Samþykkt 2642 þýðir það einnig að eftirlitskerfi Sameinuðu þjóðanna (United Nations Monitoring Mechanism) verður gagnslaust til að staðfesta ástand mannúðaraðstoðar og verkefna við landamærin,“ segir í yfirlýsingunni.

„Árið 2022, ásamt samstarfsfélögum okkar, gátum við að meðaltali flutt hjálpargögn og veitt mannúðaraðstoð til 2,7 milljóna einstaklinga í hverjum mánuði í gegnum landamæri Tyrklands og Sýrlands.“

Bent er á að ólíkt fyrri samþykktum, þar sem landamæraaðgerðirnar voru framlengdar um tólf mánuði hafi síðasta samþykkt Öryggisráðsins aðeins veitt heimild til sex mánaða. Það hafi skapað mikla óvissu, hækkað flækjustig og kostnað við allar aðgerðir og sett miklar hömlur á það mannúðarstarf sem nauðsynlegt er að veita.

„Þær milljónir einstaklinga sem treysta á þessa líflínu þvert á landamæri til að halda lífi verða að sjá þessa samþykkt endurnýjaða tafarlaust.“

Frétt UNICEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur
1 Engin fátækt
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum