Hoppa yfir valmynd
3. desember 2019 Utanríkisráðuneytið

Stuðningur við sameiningu fjölskyldna í Gíneu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent styrk til ungmennaheimilis samtakanna í Kankan, stærstu borgar Vestur-Afríkuríkisins Gíneu. Styrknum er ætlað að sameina fjölskyldur á nýjanleik en mörg börn í fátækum ríkjum eins og Gíneu alast upp utan fjölskyldunnar vegna örbirgðar.

„Það er mjög algengt í lágtekjuríkjum eins og Gíneu að foreldrar geti ekki séð börnum sínum farborða,“ segir Hans Steinar Bjarnason hjá SOS Barnaþorpunum. „SOS Barnaþorpin fá til sín árlega mörg börn í þeirri stöðu, að eiga líffræðilega foreldra á lífi, sem sjá enga leið til að annast uppeldi þeirra eða mæta grunnþörfum þeirra. Í slíkum tilvikum koma SOS Barnaþorpin til bjargar.“

Hans Steinar segir að styrkurinn sé veittur í þeim tilgangi að gefa ungmennum í Kankan sem hafa alist upp hjá SOS tækifæri til að sameinast fjölskyldum sínum á ný. „Markmiðið er tvíþætt, annars vegar að sameina ungmennin foreldrum sínum eða skyldmönnum og hins vegar að gera ungmennin reiðubúin til að fara út á vinnumarkaðinn og verða sjálfstæð,“ segir hann.

Styrkurinn, að upphæð 1,2 milljónir króna, verður meðal annars nýttur í námskeiðahald fyrir foreldra hjá SOS í uppeldisfræðum og til náms- og starfsþjálfunar fyrir ungmennin.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum