Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 91/2021 Úrskurður 11. ágúst 2021

Mál nr. 91/2021                    Millinafn:       Foss

                                               Eiginnafn:     Foss (kk.)

 

 

 

Hinn 11. ágúst 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 91/2021, en erindið barst nefndinni 28. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Nafnið Foss telst vera ættarnafn í skilningi mannanafnalaga og þess vegna er ekki hægt að samþykkja það á mannanafnaskrá sem millinafn.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Foss (kk.) er í eignarfalli Foss og telst uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Foss er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Foss (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum