Hoppa yfir valmynd
6. ágúst 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 60/2021 úrskurður 6. ágúst 2021

Mál nr. 60/2021                    Eiginnafn:     Skylar (kynhlutlaust)

 

 

 

 

 

Hinn 6. ágúst 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 60/2021 en erindið barst nefndinni 19. maí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 25. maí en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Skylar uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Skylars, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú þar sem nafnið telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem rittáknið y er ekki ritað í íslenskum orðum nema það styðjist við uppruna. Upphaflega táknaði y í íslensku hljóð sem var svipað y í dönsku og varð til við viss skilyrði. Það á ekki við um það nafn sem hér er sótt um. Í uppruna þess orðs er ekkert sem styður ritháttinn Skylar í íslensku. Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Skylar að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár Íslands ber enginn sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna, sbr. 2. lið þeirra, nafnið Skylar í þjóðskrá. Nafnið kemur heldur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Rithátturinn uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna.

Eiginnafnið Skylar er af erlendum uppruna. Það á rætur að rekja til hollensku en mun fyrst hafa verið notað sem eiginnafn í Bandaríkjunum. Þar og víðar tíðkast rithátturinn Skylar. Rithátturinn telst því uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna, sbr. 4. lið þeirra.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Skylar er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá á skrá yfir kynhlutlaus nöfn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum