Hoppa yfir valmynd
13. október 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Útreikningar lífeyris-greiðslna í kjölfar breytinga á almanna-tryggingalögum

Alþingishúsið
Alþingishúsið

Alþingi hefur samþykkt frumvarp til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar, félagslega aðstoð og málefni aldraðra. Breytingarnar eru þær viðamestu sem gerðar hafa verið á almannatryggingakerfinu í áratugi og felast meðal annars í breyttu og einfölduðu bótakerfi og sveigjanlegum starfslokum. Framlög ríkisins til lífeyriskerfisins verða aukin um 10–11 milljarða króna á ári.

Kerfisbreytingarnar ásamt auknum fjármunum inn í kerfið munu leiða til hækkunar bóta hjá þorra ellilífeyrisþega. Elli- og örorkulífeyrisþegum sem halda einir heimili og eru með fullan búseturétt hér á landi verða tryggðar 280.000 kr. á mánuði frá 1. janúar 2017 og ári síðar hækkar sú fjárhæð í 300.000 kr.

Eitt af mikilvægum markmiðum með breytingum á bótakerfinu er að gera það einfaldara, auðskiljanlegra og gegnsærra og auðvelda fólki þannig að fylgjast með réttindum sínum. Í þessu skyni hefur einnig verið komið upp bráðabirgðareiknivél á vef Tryggingastofnunar ríkisins þar sem hægt er að slá inn þær forsendur sem eiga við í hverju tilviki og sjá með einföldum hætti hver fjárhæð greiðslna muni verða á árinu 2017 fyrir og eftir staðgreiðslu skatta. Þann fyrirvara verður þó að setja að útreikningur skatta í reiknivélinni miðast við reglur ársins 2016 þar sem ekki liggja fyrir upplýsingar um hvernig skattar og persónuafsláttur muni breytast á árinu 2017.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum