Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 379/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. nóvember 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 379/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20100012

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. október 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. september 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi í fyrsta lagi með vísan til 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga og í öðru lagi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 3. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 18. ágúst 2020 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 20. ágúst 2020, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 29. september 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 30. september 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 14. október 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 23. október 2020, ásamt viðbótargögnum. Þá bárust frekari gögn frá kæranda þann 2. og 12. nóvember 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er um málsatvik vísað til gagna málsins og viðtala kæranda hjá Útlendingastofnun. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá störfum sínum í heimaríki og atburðum í heimaríki og á flótta sem hafi valdið honum líkamstjóni og andlegum erfiðleikum, en hann sé m.a. með verki í fæti eftir skotsár auk þess að glíma við afleiðingar af því að hafa fengið sprengjubrot í fótinn í heimaríki. Kærandi hafi orðið viðskila við fjölskyldu sína og hafi af þeim áhyggjur. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi þegið læknisþjónustu í Svíþjóð og Þýskalandi vegna vandamála í fótum. Kærandi hafi dvalið í fimm ár í Svíþjóð og telji að mál hans hafi ekki verið skoðað af sænskum yfirvöldum og þau hafi ætlað að senda hann til heimaríkis. Sænsk stjórnvöld hafi ekki talið frásögn kæranda nægilega skýra en kærandi telji það stafa af því að túlkurinn hafi verið frá öðru landi en kærandi. Á yfirstandandi ári hafi sænsk yfirvöld ekki viljað skoða ný gögn tengd föður kæranda. Þá hafi kærandi ekki fengið húsnæði í Svíþjóð og aðeins tímabundið fengið starf þar í landi. Þá hafi lögfræðingur kæranda ekki aðstoðað hann sem skyldi og hann hafi upplifað fordóma þar í landi.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun í greinargerð sinni. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um möguleika kæranda á að leggja fram viðbótarumsókn í Svíþjóð. Kærandi telji að af frásögn hans sé ljóst að hann hafi gert tilraunir til þess að leggja fram viðbótarumsókn og að ekki sé unnt að gera ráð fyrir því að sá möguleiki sé honum aðgengilegur. Heimild beri með sér að ekki sé sjálfgefið að umsækjendur um alþjóðlega vernd þar í landi hafi aðgang að lögfræðiþjónustu vilji þeir leggja fram viðbótarumsókn þar í landi. Í öðru lagi komi fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hans bíði varðhald við endursendingu til Svíþjóðar. Kærandi telji að verulegar líkur séu á að hann verði settur í varðhald verði hann endursendur til Svíþjóðar og vísar til heimildar því til stuðnings. Í þriðja lagi mótmælir kærandi því mati að hann sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá óskar kærandi í fjórða lagi eftir því að kærunefnd endurskoði mat Útlendingastofnunar er varðar áhrif Covid-19 faraldursins.

Um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð vísar kærandi til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Þar hafi m.a. komið fram að mikill fjöldi hafi sótt um alþjóðlega vernd árið 2015. Þrátt fyrir að umsóknum hafi fækkað frá þeim tíma séu áhrif þessarar aukningar enn merkjanleg og landið glími áfram við áskoranir vegna þess. Þá séu umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fengið hafa lokasynjun í máli sínu og eru endursendir til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hnepptir í varðhald við endurkomu til landsins á meðan gengið sé frá brottvísun þeirra. Samkvæmt nýlegum lagabreytingum eigi umsækjendur, sem fengið hafa neikvæða lokaniðurstöðu í máli sínu og til standi að brottvísa, ekki lengur rétt á þjónustu frá sænskum stjórnvöldum, sé frestur til brottfarar af sjálfsdáðum liðinn. Feli það í sér að umsækjandi fái ekki lengur fjárhagsaðstoð eða húsnæði á vegum ríkisins og fólk í þessari stöðu njóti ekki niðurgreiddrar heilbrigðisþjónustu.

Kærandi byggir í fyrsta lagi kröfu sína um efnismeðferð á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnislegrar meðferðar með vísan til 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvæði 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sé íslenskum stjórnvöldum óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. ákvæðisins (e. indirect refoulement). Reynt hafi á bann gegn óbeinni endursendingu samkvæmt 45. gr. eldri laga um útlendinga nr. 96/2002 fyrir Hæstarétti, m.a. í máli nr. 405/2013, sem einnig hafi varðað endursendingu umsækjanda um alþjóðlega vernd til Svíþjóðar sem synjað hafði verið um alþjóðlega vernd þar í landi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Í greinargerð kæranda er að finna beina tilvitnun til niðurstöðu Hæstaréttar í framangreindu máli þar sem fram kemur að málsmeðferð í Svíþjóð vegna málefna hælisleitenda hafi ekki verið talin haldin slíkum kerfislegum ágöllum að hún færi í bága við 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og að ekki hefði komið fram í málinu að sænsk stjórnvöld myndu ekki veita stefnda í málinu þá vernd sem áskilin væri í alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins, þ. á m. reglunni um non-refoulement væri hann sendur aftur til Svíþjóðar. Kærandi telji að af dómi Hæstaréttar megi ráða að ef eitthvað komi fram í málinu sem bendi til þess að móttökuríki muni ekki veita þá vernd sem áskilin sé í alþjóðlegum skuldbindingum Svíþjóðar á sviði mannréttinda, þ. á m. reglunni um non-refoulement geti endursending þangað brotið gegn 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í máli kæranda hafi komið fram vísbendingar um að Svíþjóð muni ekki veita honum þá vernd sem áskilin sé í alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. Kærandi vísar til heimildar frá árinu 2017 þess efnis að Svíþjóð hafi undanfarin ár stundað brottvísanir umsækjenda um alþjóðlega vernd til Afganistan. Fyrir liggi að Svíþjóð hafi synjað umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og líkur séu á að hann verði fluttur þaðan með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Kærandi telji íslensk stjórnvöld meðvituð um ástandið í Afganistan enda séu umsóknir fólks þaðan sem teknar séu til efnismeðferðar hér á landi afgreiddar hratt, ýmist með veitingu stöðu flóttamanns eða viðbótarverndar vegna almennra aðstæðna í landinu.

Í öðru lagi byggir kærandi kröfu sína um efnismeðferð á því að fella eigi ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð kæranda er vísað til þess að kærandi telji að íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi líkamlegir og andlegir erfiðleikar kæranda verið raktir og komist að þeirri niðurstöðu að hann teldist ekki vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Kærandi telji að svo sé og vísar til sögu sinnar, hann hafi greint frá líkamstjóni sem hann hafi orðið fyrir, þá hafi hann lifað stóran hluta ævi sinnar við stríð og þjáist þar sem hann viti ekki hvar börn hans séu niðurkomin. Þá kemur fram í greinargerð kæranda að honum hafi verið gefin geðdeyfðarlyf og að hann hafi sótt tíma hjá sálfræðingi hér á landi. Kærandi vísar til þess að með reglugerð nr. 276/2018 hafi verið gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2070 er varði framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þar sé að finna skilyrði sem kærandi telji ganga lengra en ákvæði laga um útlendinga og gangi í raun gegn vilja löggjafans. Þá séu þau viðmið sem sett séu fram í 32. gr. a umræddrar reglugerðar sett fram í dæmaskyni og því telji kærandi að ekki sé um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Þá er í greinargerð kæranda vísað til þess að kærandi telji ekki ólíklegt að heimsfaraldur vegna Covid-19 hafi áhrif á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í allri Evrópu og að kærandi sé ósammála því mati Útlendingastofnunar að áhrif Covid-19 faraldursins geri ekki að verkum að fyrir hendi geti verið sérstakar ástæður í máli kæranda, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Sweden (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database. National Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 11. maí 2020);
  • EASO Asylum Report 2020. Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (European Asylum Support Office, 25. júní 2020);
  • Freedom in the World 2019 – Sweden (Freedom House, 2019);
  • Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, ágúst 2019);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);
  • Sweden 2019 Human Rights Report (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se) og
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 2. nóvember 2020).

Samkvæmt framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) tekur sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Samkvæmt sænskum lögum þurfa að vera gildar ástæður fyrir því að upplýsingar eða gögn hafi ekki verið fyrr lögð fram í málsmeðferðinni. Ef réttmæt ástæða er til að telja að útlendingur sé í hættu, þ. á m. á dauða, líkamsrefsingu, pyndingum eða annarri vanvirðandi meðferð við endurkomu sína til endursendingaríkis þurfi þó ekki að sýna fram á að gildar ástæður séu fyrir því að ný gögn eða nýjar upplýsingar komi svo seint fram. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á áðurnefndri heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og skýrslu ECRE að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða á hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. brýnni geðheilbrigðisþjónustu, fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf. Þá missir hann rétt sinn til húsnæðis og framfærslu en mörg sveitarfélög halda þó áfram að styðja við umsækjendur sem hafa fengið neikvæða niðurstöðu auk þess sem að sænska útlendingastofnunin heldur úti viðkomumiðstöðvum (e. transit centres) fyrir þá sem hafa samþykkt sjálfviljuga heimför (e. voluntary departure).

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við málsmeðferð viðbótarumsókna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716) eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun. Ákvarðanir um varðhald eru almennt endurskoðaðar af dómstólum og við meðferð slíkra mála hjá dómstólum eiga einstaklingar rétt á lögfræðiaðstoð.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann væri giftur og ætti börn en viti ekki hvar þau séu niðurkomin. Þá greindi kærandi m.a. frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 3. september 2020, að hann glími við svefnörðugleika, minnisleysi og hafi litla matarlyst vegna áhyggna af börnum sínum. Þá hafi hann þurft að dvelja í sex mánuði á spítala eftir að hafa dottið úr bíl í heimaríki og geti í kjölfarið ekki skrifað, [...] og hann eigi erfitt með að einbeita sér. Kærandi greindi frá því að þegar hann hafi verið ungur hafi sprengja sprungið nálægt honum og hægri fótur hans sé styttri, en sá vinstri, af þeim sökum. Þá hafi kærandi verið skotinn í vinstri fótinn.

Í gögnum um heilsufar kæranda sem hann hefur lagt fram við meðferð málsins, t.a.m. frá Heilsugæslunni í Keflavík, dags. 18. september til 20. október 2020, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, dags. 23. október 2020 og frá Göngudeild sóttvarna, dags. 27. ágúst til 22. september 2020, kemur m.a. fram að kærandi hafi fengið ávísað lyfjum hér á landi, þ. á m. verkjalyfjum og lyfi vegna þunglyndis. Þá kemur þar fram að kærandi sé m.a. með styttingu á hægri fæti og að skakkt álag sé á ökkla auk vægrar gyllinæðar og að hann hafi lýst blóðbragði í munni og andlegri vanlíðan. Þá hafi kærandi hitt sálfræðing hér á landi, sbr. framlögð gögn frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. september og 20. október 2020.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 3. september 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi lagði fram ný heilsufarsgögn með greinargerð sinni til kærunefndar þann 23. október 2020. Þá var kæranda leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 29. október 2020, um framlagningu frekari gagna, t.a.m. heilsufarsgagna væru þau til staðar og bárust frekari gögn frá kæranda þann 2. og 12 nóvember 2020.

Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst en meðal annars liggur fyrir að kærandi hafi glímt við andlega vanlíðan og tiltekin líkamleg meiðsli. Kærunefnd telur þó að aðstæður hans séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verður ráðið að umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, en fá þó ekki fjárhagsstuðning ríkisins til þess að greiða fyrir slíka þjónustu. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi komi því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi, en hann muni e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur. Í þessu sambandi áréttar kærunefnd að í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er sérstaklega tekið fram að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Hvað varðar sjónarmið kæranda um að varðhald í Svíþjóð kunni að bíða hans við komuna þangað til lands áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hlotið hafa endanlega neikvæða niðurstöðu í Svíþjóð getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði sænskra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar einstaklingur á yfir höfði sér brottvísun og tilefni er til að halda að hann muni láta sig hverfa. Sé ákvörðun um varðhald tekin á lægra stjórnsýslustigi er unnt að bera lögmæti þess undir dómstóla. Í áðurgreindri skýrslu ECRE kemur fram að sænskir dómstólar hafi komist að þeirri niðurstöðu að hámarks lengd varðhalds vegna framkvæmdar brottvísunar séu tólf mánuðir. Í 11. kafla sænsku útlendingalaganna er mælt fyrir um rekstur varðhaldsmiðstöðva þar í landi. Þar er mælt fyrir um að koma eigi fram við þá útlendinga sem þar sé haldið af mannúð og virðingu. Þá eigi aðbúnaður að vera með eins líkum hætti og í hefðbundnum móttökumiðstöðvum sem rekin séu af sænsku Útlendingastofnuninni, að því undanskildu að um lokað úrræði er að ræða og ákveðnar takmarkanir eru á ferðafrelsi þeirra sem þar dvelja. Af öryggisástæðum er heimilt að gera útlendingi að dvelja í herbergi sínu en slík ákvörðun lýtur reglulegri endurskoðun, í það minnsta þriðja hvern dag. Þá njóti þeir sem dvelja í varðhaldsmiðstöðvum aðgangs að heilbrigðisþjónustu að sama marki og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að hann teljist eiga erfitt uppdráttar í Svíþjóð eða að öðru leyti séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum. Þá er áréttað að framangreindar landaupplýsingar um aðstæður í Svíþjóð beri með sér að einstaklingur sem hafi fengið lokasynjun á máli sínu í Svíþjóð geti lagt fram viðbótarumsókn, svo sem ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans eða ef aðstæður hafa breyst í máli hans.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Yfirvöld í Svíþjóð hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með takmörkunum á ferðum til landsins og takmörkunum á fjöldasamtökum. Þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað á nýjan leik í Svíþjóð hefur kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkisins og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 3. ágúst 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn sé frelsissviptur, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að vegna stöðu hans sem umsækjanda um alþjóðlega vernd í viðtökuríki verði endursending hans þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafla sænsku útlendingalaganna. Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Kærunefnd leggur þá áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstaklinginn til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) til að tryggja að einstaklingar verði ekki sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. til hliðsjónar dóm Mannréttindadómstóls Evrópu frá 21. janúar 2011 í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09). Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að í Svíþjóð sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kemur slíkt hið sama fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 405/2013, dags. 24. október 2013, sem kærandi vísar sjálfur til.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem að framan hefur komið gerir kærandi athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, m.a. við beitingu reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með áorðnum breytingum.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að taka umsókn hans ekki til efnismeðferðar með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 2. ágúst 2020 og sótti um alþjóðlega vernd þann 3. ágúst 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                          Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum