Hoppa yfir valmynd
29. maí 2018 Dómsmálaráðuneytið

nr. 238/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. maí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 238/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18040037

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 20. apríl 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. mars 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar í fyrsta lagi með vísan til 1. og 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr., sömu laga.

Til vara er gerð sú krafa að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, og til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. október 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Þann 13. október 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að ítölsk stjórnvöld samþykktu viðtöku, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 20. desember 2017. Útlendingastofnun ákvað þann 22. mars 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 6. apríl 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 20. apríl 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 2. maí 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Ítalíu. Flutningur kæranda til Ítalíu fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Ítalíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá því að hann sé [...]. Kvaðst kærandi þá þjást af svefnörðugleikum og finna fyrir miklum kvíða vegna þeirra aðstæðna sem hann hafi flúið í heimaríki. Kvaðst kærandi vera [...] í heimaríki vegna [...]. Þar hafi hann verið settur í gæsluvarðhald og hann hafi þá orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og áreiti af samfélaginu. Hann væri með ör víða á líkamanum eftir barsmíðar sem hann hafi orðið fyrir.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi búið ólöglega á Ítalíu, ekki átt í nein hús að venda, ekki haft möguleika á að fá vinnu og hafi því ekki getað borgað smyglaranum sem hafi komið honum til Ítalíu, en sá hafi margsinnis haft í hótunum við kæranda. Hann hafi ekki getað leitað aðstoðar lögreglu vegna umræddra hótana. Þá hafi hann ekki notið fyrirgreiðslu af neinu tagi frá ítölskum stjórnvöldum og ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi. Einnig hafi hann orðið fyrir fordómum á Ítalíu vegna [...], auk þess sem hann hafi orðið fyrir fordómum þar frá öðru fólki [...] vegna [...]. Með tilliti til andlegrar heilsu kæranda og [...] telji kærandi miklar líkur á því að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð sinni gerir kærandi grein fyrir aðstæðum og réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu, m.a. með vísan til alþjóðlegra skýrslna. Þar komi meðal annars fram að ítalska hæliskerfið hafi verið undir miklu álagi síðustu ár og aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks þar í landi séu mjög bágbornar. Á síðasta ári hafi ítalska ríkisstjórnin gripið til ýmissa aðgerða til að flýta málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd, sem m.a. hafi falið í sér takmörkun á rétti umsækjenda til að kæra neikvæðar ákvarðanir. Þá komi fram að þúsundir umsækjenda um alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum byggingum í Róm og öðrum stórborgum án nokkurrar aðstoðar frá hinu opinbera. Aðstæður þeirra sem fái pláss í móttökumiðstöðvum séu skelfilegar, enda séu þær yfirfullar og aðgangur að heilsugæslu, grunnmenntun og aðstoð lögfræðinga mjög takmarkaður. Þá sé nær ómögulegt fyrir umsækjendur að fá vinnu þar sökum mikils atvinnuleysis á Ítalíu. Ennfremur hafi kynþáttahatur og mismunun á grundvelli kynþáttar farið vaxandi þar í landi. Niðurstöður nýlegra þingkosninga bendi til þess að sú stjórn sem muni taka við stjórnartaumum á Ítalíu muni ganga harkalega fram gegn flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Kærandi byggir á því í greinargerð sinni að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar á grundvelli þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi meðal annars til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og úrskurða kærunefndar útlendingamála máli sínu til stuðnings, en auk þess vísar hann til áðurgreindrar umfjöllunar í greinargerð sinni um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu. Í greinargerð kæranda er tekið fram að við mat á því hvort að viðkvæm staða kæranda verði talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki verði kærunefnd að skoða einstaklingsbundnar aðstæður hans. Ekkert í málsgögnum bendi til þess að Útlendingastofnun hafi gefið sér tíma til að afla nauðsynlegra gagna um ástand andlegrar heilsu hans, sérstaklega í ljósi þess að í komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram að kærandi geti ekki sofið, sé hræddur, vakni oft upp af martröðum, fyllist kvíða og verði rennsveittur í tilfinningalegu ójafnvægi. Þá sé sérstaklega vísað í niðurstöðu prófs sem hann hafi verið látinn taka án þess að gert sé grein fyrir mikilvægi hennar.

Kærandi byggir aðalkröfu sína einnig á því að ótækt sé að senda hann til Ítalíu með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr., laga um útlendinga. Kærandi telji að íslensk stjórnvöld geti einungis tryggt að kærandi verði ekki áframsendur frá Ítalíu eða tryggt að slík áframsending brjóti ekki gegn 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga með því að fara fram á yfirlýsingu þess efnis frá ítölskum stjórnvöldum, eða meta sjálfstætt hvort kærandi megi óttast meðferð í heimaríki sem brjóti í bága við ákvæðið. Kærandi telji að verði hann sendur til Ítalíu muni slíkt brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Varakrafa kæranda er reist á því að rannsókn málsins hjá Útlendingastofnun hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Bendir kærandi á að rannsókn stofnunarinnar á andlegri heilsu sinni hafi verið áfátt. Kærandi hafi fengið tveggja vikna frest til að skila inn læknisfræðilegum gögnum um andlega heilsu sína þó svo að hann hafi ekki fengið tíma hjá sálfræðingi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld bera ábyrgð á viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu er byggð á því að ítölsk stjórnvöld hafi ekki svarað beiðni um endurviðtöku innan tilskilins frests. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæður getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi er [...] ára gamall einhleypur karlmaður sem kvaðst í viðtölum hjá Útlendingastofnun vera [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi m.a. þjást af svefnörðugleikum og finna fyrir kvíða. Hann hafi þá [...] orðið fyrir ofbeldi og áreiti í heimaríki. Af gögnum um heilsufar kæranda, þ.e. komunótum dags. 24. október 2017 til 16. apríl 2018, verður ráðið að hann hafi m.a. glímt við svefnörðugleika, húðþurrk og haft flensueinkenni. Þá hafi kærandi hitt sálfræðing í tvö skipti, þann 10. nóvember 2017 og 16. apríl 2018. Kærandi hafi þar greint frá andlegri vanlíðan sinni, hann sofi illa, sé vonlítill og finnist hann vera bugaður.

Í greinargerð er af hálfu kæranda vísað til þess að í komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram að kærandi „geti ekki sofið, sé hræddur, vakni oft upp af martröðum, fyllist kvíða og verði rennsveittur í tilfinningalegu ójafnvægi“ auk þess sem sérstaklega er vísað til niðurstöðu prófs sem kærandi hafi verið látinn taka. Þessar upplýsingar koma ekki fram í þeim gögnum málsins sem bárust kærunefnd. Af því tilefni óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum um framangreint í tölvupósti til talsmanns kæranda, dags. 17. maí 2018. Þann sama dag barst svar frá talsmanni kæranda. Þar segir að í lok viðtals hjá Útlendingastofnun, dags. 1. febrúar 2018, hafi kærandi fengið að fylla út skimunarpróf til að meta ástand andlegrar heilsu hans og samkvæmt orðalagi lögfræðings hafi kærandi skorað hátt í þessu prófi. Þá tók talsmaður fram að hann hafi gert ráð fyrir því að umrætt próf hefði fylgt gögnum málsins til kærunefndar. Þann 18. maí 2018 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum hjá Útlendingastofnun um hvort slíkt skimunarpróf hefði verið lagt fyrir kæranda en í svari stofnunarinnar þann sama dag kemur m.a. fram að stofnunin kannist ekki við að slíkt próf hafi verið lagt fyrir kæranda. Kærunefnd óskaði aftur eftir frekari upplýsingum frá talsmanni kæranda um þetta atriði. Þann 23. maí 2018 barst kærunefnd svar frá talsmanni kæranda, sem kvaðst staðfastlega telja að prófið hafi verið lagt fyrir kæranda. Hann fái aldrei send þessi próf og því standi orð gegn orði. Áður hefur verið greint frá þeim upplýsingum sem fram koma í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, sem liggja fyrir í gögnum máls en af þeim verður ekki ráðið að umrædd atriði, sem haldið er fram í greinargerð kæranda, komi þar fram. Telur kærunefnd því ekki forsendur til að leggja til grundvallar í málinu þær upplýsingar sem koma fram í greinargerð kæranda varðandi andlega og líkamlega heilsu kæranda.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2016 (European Asylum Support Office, 5. júlí 2017),
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 21. mars 2018),
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017),
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016),
  • Freedom in the World 2018 – Italy (Freedom House, 5. apríl 2018),
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015),
  • Italy 2017 Human Rights Report (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014),
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013),
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy), Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni þá hefur hann kost á því að bera synjunina undir stjórnsýsludómstól (í. Tribunale Civile). Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn hæliskerfisins til að taka við skyndilegu eða verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma umsækjendur um alþjóðlega vernd sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk stjórnvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja í þessum málaflokki. Hins vegar hefur Flóttamannastofnunin ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, eru frjáls félagasamtök til staðar sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veita gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu. Þó geta umsækjendur lagt fram beiðni um gjafsókn (í. gratuito patrocinio) kjósi þeir að bera endanlega synjun á umsókn sinni undir dómstóla.

Ítalía er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þá er Ítalía jafnframt aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna (e. 1951 Convention Relating to the Status of Refugees) og mannréttindasáttmála Evrópu, en grundvallarreglan um bann við endursendingu einstaklinga til svæðis þar sem þeir hafi ástæðu til að óttast ofsóknir eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð er lögfest í þessum alþjóðasáttmálum.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum. Flestir fái úthlutað gistirými í CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria) sem eru tímabundnar móttökumiðstöðvar en ella eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á gistiplássi í SPRAR (í. Sistema di protezione per richiedenti asilo e rifugiati) móttökumiðstöðvunum. Framboðið sé hins vegar takmarkað og ekki fái allir umsækjendur úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum. Þá bjóði sveitarfélög, frjáls félagasamtök og trúfélög í Róm og Mílanó upp á gistiaðstöðu en þau séu einnig af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld vinni að því að byggja upp fleiri móttökumiðstöðvar í því skyni að mæta þessum vanda.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér verður jafnframt ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þar á meðal aðstoð sálfræðinga og annarra vegna andlegra vandamála. Þeir þurfa þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fá þeir útgefið tryggingarkort (í. Tessera sanitaria) sem veitir þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafa lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mjög mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, bæði ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Samkvæmt ítölskum lögum er kynþáttahatur, kynþáttafordómar og hvers kyns mismunun bönnuð, hvort sem er á grundvelli kynþáttar, trúar, uppruna eða annarra atriða. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk yfirvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum og hatursglæpum, þ. á m. með innleiðingu aðgerðaráætlunar gegn kynþáttahyggju, hræðslu við útlendinga og umburðarleysi (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að ítölsk lögregluyfirvöld hafi fullnægjandi úrræði til þess að rannsaka þau mál sem leitað er til hennar með. Þó hafi verið gagnrýnt að saksókn mála taki í sumum tilfellum of langan tíma.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að ná ákveðinni lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans, sem fyrr segir. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að sú staðreynd ein og sér að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn flutningi, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæður kæranda hafa áður verið raktar. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá fær nefndin ekki séð að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi rétt á heilbrigðisþjónustu. Þá geti kærandi leitað sér sálfræðiaðstoðar vegna andlegrar heilsu sinnar á Ítalíu. Þó svo að mikið álag sé á hæliskerfi Ítalíu telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar heilbrigðisþjónustu þar í landi.

Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður jafnframt ráðið að óttist kærandi um öryggi sitt eða verði fyrir mismunun [...] geti hann leitað ásjár ítalskra yfirvalda vegna þess. Þá er það mat kærunefndar að kærandi geti leitað ásjár lögreglu vegna þeirra hótana sem hann kveðst hafa orðið fyrir.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 1. febrúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 10. október 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Líkt og fram hefur komið gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Telur kærandi að Útlendingastofnun hafi hvorki rannsakað andlega heilsu kæranda nægilega vel né tryggt að hann fengi viðeigandi aðstoð til að vinna úr erfiðri lífsreynslu sinni. Þá er af hálfu kæranda gerð athugasemd við að hann hafi fengið tveggja vikna frest frá viðtali til að skila inn læknisfræðilegum gögnum en hann hafi ekki fengið tíma hjá sálfræðingi innan þess tímafrests.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og rannsókn hennar, auk þess að hafa farið yfir öll gögn málsins, en þar á meðal eru komunótur af Göngudeild sóttvarna dagsettar frá 24. október 2017 til 16. apríl 2018. Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 1. febrúar sl. að öll læknisfræðileg gögn gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli hans. Þá var honum leiðbeint um að ef hann leitaði til læknis eða sálfræðings vegna kvilla sem hann teldi hafa þýðingu í málinu, að fá skriflegar upplýsingar um heilsufar sitt og leggja þær fram hjá Útlendingastofnun. Var veittur tveggja vikna frestur til að leggja fram gögn í málinu. Sá frestur var áréttaður í tölvupósti til talsmanns kæranda, dags. 7. febrúar 2018. Engin læknisfræðileg gögn voru lögð fram hjá Útlendingastofnun af hálfu kæranda. Kærunefnd telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands 9. október 2017. Hann sótti um alþjóðlega vernd 10. október s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Ítalíu ekki síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

 

Pétur Dam Leifsson                                                                  Erna Kristín Blöndal

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum