Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2020 Utanríkisráðuneytið

COVID-19: Íslendingum þakkað rausnarlegt framlag til Malaví

Ljósmynd frá Malaví: WFP/Badre Bahaji - mynd

„Heimsfaraldurinn hefur þegar haft mikil óbein áhrif á íbúa þróunarríkja og okkur rennur blóðið til skyldunnar að styðja við Malaví í baráttunni gegn afleiðingum farsóttarinnar, sem er elsta samstarfsríki okkar í þróunarsamvinnu og eitt fátækasta ríki heims. Framlagið er hluti af stærra viðbragði ráðuneytisins við faraldrinum sem ráðstafað er til alþjóðlegra samstarfsstofnana,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) birti frétt í gær þar sem fagnað er rausnarlegu framlagi Íslands til að greiða fyrir ýmiss konar aðkeypt hjálpargögn til Malaví vegna COVID-19 og tryggja skilvirka dreifingu þeirra um landið. Utanríkisráðuneytið ráðstafaði 27 milljónum íslenskra króna til WFP á grundvelli samtarfssamnings við ríkisstjórn Malaví og Logistics Cluster en það er alþjóðleg stofnun sem sérhæfir sig í dreifingu hjálpargagna í mannúðarskyni.

Með framlaginu verður unnt að fjölga heilsugæslustöðvum á landamærum og innan héraða. Einnig verður fjármagninu varið til dreifingar á hjálpargögnum í afskekktum héruðum og svæðum þar sem matvæli eru af skornum skammti. Í þriðja lagi nýtist framlagið til þess að byggja upp getu innan stjórnkerfisins til þess að bregðast betur við hamförum og neyðartilvikum.

„Ég þakka Íslandi fyrir þetta framlag sem berst á hárréttum tíma. Það greiðir fyrir afhendingu lífsnauðsynlegrar aðstoðar við fólk í neyð, sérstaklega til þess að bregðast við COVID-19 heimsfaraldrinum. Þegar þjóðir eru vel undirbúnar er hægt að afstýra stigmögnun hamfara og áhrif neyðarástandsins verða minni,“ segir Marco Cavalcante, starfandi framkvæmdastjóri WFP í Malaví.

Í fréttinni er haft eftir Ingu Dóru Pétursdóttur forstöðumanni sendiráðsins í Lilongwe að íslensk stjórnvöld séu ánægð með að taka höndum saman við ríkisstjórn Malaví og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna til þess að bregðast við þörfum íbúa Malaví á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru.

„Ríkisstjórn Malaví, WFP og Logistics Cluster vinna saman að því að tryggja á réttum tíma óslitið framboð lífsnauðsynlegra hjálpargagna og dreifingu þeirra til viðkomandi samfélaga,“ segir í fréttinni. Þar segir enn fremur að með samstarfinu auðveldi þessir aðilar áframhaldandi neyðarviðbrögð vegna COVID-19 til að byggja upp þol gegn heimsfaraldrinum. Enn fremur sé tryggð nauðsynleg dreifing hjálpargagna á þeim mánuðum sem nú fara í hönd í Malaví og einkennast jafnan af matarskorti.

Í sameiginlegu átaki er verið að koma á fót samhæfingarmiðstöðvum flutninga í tveimur stærstu borgum Malaví, Lilongwe og Blantyre, til að geta veitt nauðsynlega aðstoð og tryggt  upplýsingagjöf um þjónustuna.

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) er ein af áherslustofnunum Íslands í mannúðaraðstoð og hlaut á dögunum friðarverðlaun Nóbels. Malaví er elsta samstarfsland Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu. Á síðasta ári voru þrjátíu ár liðin frá upphafi samstarfsins.

Frétt WFP

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum