Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 121/2019 Úrskurður 14. janúar 2020

Mál nr. 121/2019                   Eiginnafn:      Lúsífer (kk.)

 

 

 

 

Hinn 14. janúar 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 121/2019 en erindið barst nefndinni 12. desember 2019.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Þar sem nafnið Lúsífer (kk.) er eitt af nöfnum djöfulsins telur mannanafnanefnd ljóst að það geti orðið nafnbera til ama.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lúsífer (kk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum