Lestrarátak Ævars fyrir alla fjölskylduna
„Læsi skiptir sköpum, það er lykill að lífsgæðum okkar til framtíðar og ég fagna þessu framtaki Ævars sem hvatt hefur þúsundir krakka til þess að lesa meira,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Mér finnst líka frábært að nú geti fjölskyldan tekið virkan þátt. Foreldrar eru bestu lestrarfyrirmyndir barna sinna og þetta er góð hvatning fyrir lesendur á öllum aldri til að vera dugleg að lesa á nýju ári.“
Veggspjöldin munu berast grunnskólum um land allt á næstu dögum en upplýsingar fyrirkomulag átaksins og lestrarmiða má finna á heimasíðu Ævars, www.visindamadur.com. Þátttakendur í lestrarátaki Ævars hafa samtals lesið yfir 230.000 bækur á síðustu fjórum árum.