Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Undirbúningur vegna svínaflensu er samkvæmt áætlun

Í morgun áttu sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fund með fulltrúum stofnana sem gegna lykilhlutverki í viðbúnaðaráætlun vegna inflúensufaraldurs. Á fundinum voru lögð fram drög að framkvæmd sóttvarna og viðbúnaði í samræmi við viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu. Niðurstaða fundarins var sú að allir aðilar eru vel undirbúnir í samræði við áætlanir sem fyrir liggja.

Í gærkvöldi lýsti alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) yfir því að hættustig vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu hafi verið uppfært frá 3. stigi til þess 4. sem samsvarar hættustig almannavarnakerfisins hér á landi. Hér á landi hefur vinna hafist samkvæmt hættustigi almannavarna og markmið eru að halda nýjum inflúensustofni innan afmarkaðs svæðis, seinka útbreiðslu og vinna þannig tíma til að bregðast við.

Seint í gærkvöld var fjöldi staðfestra tilfella þessi:

  • 3 tilfelli af svínainflúensu á Spáni og Bretlandi
  • 6 tilfelli í Kanada
  • 40 tilfelli í Bandaríkjunum
  • 33 tilfelli í Mexíkó

Tölurnar benda til þess að útbreiðsla svínainflúensu um heiminn sé umtalsverð. Í Bandaríkjunum þar sem flest tilfelli hafa verið staðfest er um vægan sjúkdóm að ræða. Ekki hafa borist fregnir um að sjúkdómstilvik sem greinst hafa annars staðar en í Mexíkó séu alvarleg. Í ljósi þess hve útbreiðsla inflúensunnar virðist umfangsmikil mælir WHO ekki með ferðatakmörkunum.

Hérlendis beinast aðgerðir manna að því á þessu stigi að fylgjast með þeim sem koma til landsins einkum frá Bandaríkjunum og Mexíkó. Þetta þýðir að ef minnstu einkenna um inflúensu verður vart hjá viðkomandi þá undirgangast þeir læknisrannsókn. Eins er lögð áhersla á að upplýsa aðila innan heilbrigðisþjónustunnar og að hægt verði að taka strax sýni og bjóða inflúensusjúklingum upp á meðferð. Almannavarnadeildin leggur áherslu á að upplýsa sína tengiliði og samhæfa viðbrögð samkvæmt fyrirliggjandi áætlun.

Í landinu eru til inflúensulyf (sem talin eru virk gegn svínainflúensunni) fyrir um þriðjung þjóðarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Sóttvarnastofnun ESB hafa greinst tilfelli á Spáni og á Bretlandi og var staðan þessi seint í gærkvöld. Rétt er að benda á að aðeins 33 tilvik voru staðfest í Mexíkó.

Hér að neðan er tafla með yfirliti um staðfest tilvik eins og ECDC greindi frá í gærkvöldi:

Text in English

EU or non-EU

Country

Persons under investigation

Confirmed cases

Negative test results

TOTAL

Czech Republic

1

0

0

1

Denmark

6

0

0

6

France

4

0

-4

0

Germany

3

0

0

3

Greece

1

0

0

1

Ireland

4

0

0

4

Italy

1

0

0

1

Spain

9

1

0

10

Sweden

5

0

-5

0

EU

UK

17

2

0

19

EU Total

51

3

-9

45

Australia

5

0

-2

3

Brazil

4

0

0

4

Canada

25

6

0

31

Colombia

12

0

0

12

Hong Kong

1

0

-1

0

Israel

2

0

0

2

Mexico

1614

33

0

1647

New-Zealand

25

0

0

25

Peru

1

0

0

1

Switzerland

5

0

0

5

Non-EU

USA

17

40

0

57

Non-EU Total

1708

79

-3

1785

Grand Total

1757

82

-12

1832



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum