Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2021 Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

COVID-19: Létt á takmörkunum í skólastarfi frá 24. febrúar

Háskóli Íslands - mynd

Almennt verður heimilaður hámarksfjöldi nemenda 150 í hverju rými og blöndun milli sóttvarnahólfa heimil á öllum skólastigum, líka í háskólum. Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Aðeins þarf að bera grímur ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna. Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir. Þetta eru meginbreytingarnar á takmörkun skólastarfs sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Gildistími nýrrar reglugerðar um takmarkanir á skólastarfi er til og með 30. apríl nk. 

Líkt og verið hefur gilda engar fjöldatakmarkanir um nemendur í leikskólum, þeir eru undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun. Í grunnskólum verður heimilt að hafa 150 nemendur í hverju rými en líkt og áður eru nemendur í 1. til 10. bekk undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun.

Reglur tónlistarskóla munu taka mið af sambærilegum skólastigum.   

Viðburðir tengdir félagsstarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum og í tónlistarskólum verða heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda og nálægðartakmörkunum sem gilda á viðkomandi skólastigi.

Viðburðir þar sem gestir sitja:

Heimilt verður að halda viðburði í skólum í samræmi við almennar reglur um samkomutakmarkanir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum