Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2013 Utanríkisráðuneytið

ESB býður Íslendingum náið samráð um fríverslun

Össur og De Gucht

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Karel De Gucht viðskiptastjóri Evrópusambandsins bundust í dag fastmælum um að náið samráð yrði haft við Íslendinga í krafti stöðu þeirra sem umsóknarríkis, um hinn stóra viðskiptasamning Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem nú er í undirbúningi.

De Gucht sagði heppilegast að slíkt samráð færi fram á vettvangi reglulegs samráðs háttsettra embættismanna um viðskiptamál sem komið var á fót í tengslum við aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Hann kvað þó skýrt að orði að samningurinn yrði einungis á milli þessara tveggja aðila, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.

Viðskiptasamningur tveggja stærstu hagkerfa heimsins, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, mun ná til þriðjungs af öllum viðskiptum heimsins. Þær munu snúast um þrjár stoðir: Markaðsaðgang fyrir vöru og þjónustu, gagnkvæma viðurkenningu á stöðlum og samræmdar reglur um hnattræn viðfangsefni.

Össur segir mikið hagsmunamál fyrir Íslendinga að komast með þessum hætti að borðinu þar sem hægt væri að undirbúa þátttöku Íslands innan þessa stóra viðskiptasvæðis. Íslensk fyrirtæki og neytendur þyrftu á því að halda að hagsmuna þeirra yrði gætt þegar svo umfangsmikill samningur væri í bígerð. 

Ráðherra hefur þegar skrifað til John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna um mögulega aðkomu Íslands og tekið málið upp við kollega sinna innan EFTA.

Í gær átti utanríkisráðherra fund með Gunther Oettinger orkumálastjóra Evrópusambandsins. Þar kom skýrt fram að Íslendingar muni halda algerlega óskertu eignarhaldi og yfirráðum yfir orkulindum sínum við inngöngu í Evrópusambandið. „Íslendingar munu ráða því hvaða orkulindir verði nýttar, hvernig þær yrðu nýttar og hvernig við flytjum og dreifum orkunni,“ segir Össur. „Þannig getum við nú lagt til hvílu hina lífseigu bábilju um að við munum tapa yfirráðum yfir orkulindum okkar við inngöngu í ESB.“

Þeir Össur og Oettinger ræddu hvernig ESB og Ísland gætu unnið saman að því að auka hlut jarðhitans í Evrópu og boðar Oettinger til sérstakra hingborðsumræðna í Brussel í haust með íslenskum og evrópskum sérfræðingum og fulltrúum fjármálastofnana sem fjármagna orkuframkvæmdir í Evrópu.

Í ferð sinni til Brussel hitti ráðherra einnig Stefan Fule stækkunarstjóra ESB og Tonio Borg sem fer með matvælaöryggi og heilbrigðismál í framkvæmdastjórninni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum