Hoppa yfir valmynd
2. maí 2012 Utanríkisráðuneytið

Ísland mótmælir tillögu ESB um viðskiptaaðgerðir


Á fundi Sameiginlegu EES nefndarinnar í dag var lögð fram yfirlýsing Íslands vegna fyrirliggjandi tillögu ESB um reglugerðarheimild til að beita viðskiptaaðgerðum gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar fiskveiðar. Í yfirlýsingu Íslands er ítrekað að efni fyrirhugaðrar reglugerðar brjóti í bága við alþjóðalög, þar á meðal EES-samninginn.

Evrópuþingið hefur verið með til umfjöllunar tillögu framkvæmdastjórnarinnar um reglugerð sem heimili ESB að beita viðskiptaaðgerðum gegn ríkjum sem stundi ósjálfbærar fiskveiðar að þess mati. Í meðförum þingsins hefur ákvæðum tillögunnar verið breytt þannig að þau ganga í berhögg við EES samninginn. Íslensk stjórnvöld hafa ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessara breytingatillagna og komið á framfæri mótmælum bæði munnlega og skriflega við sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins, framkvæmdastjórn ESB og við aðildarríki þess. Í yfirlýsingunni beina íslensk stjórnvöld því til Evrópusambandsins að það virði í hvívetna alþjóðlegar skuldbindingar sínar við ákvarðanir og beitingu viðskiptaaðgerða af þessu tagi. Sérstaklega er vísað til ákvæða bókunar 9 í EES samningnum sem banna allar viðskiptaaðgerðir sem ganga lengra en löndunarbann á fiski úr sameiginlegum stofnum og sem sem deilur standa um.

Yfirlýsinguna má finna hér (á ensku).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum