Hoppa yfir valmynd
7. júní 2023 Utanríkisráðuneytið

Öryggismál á norðurslóðum í brennidepli

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra - myndKristinn Ingvarsson

Breyttar öryggishorfur á norðurslóðum, mikilvægi alþjóðalaga, bætt eftirlitsgeta og aukin varnarsamvinna lýðræðisríkjanna á norðurslóðum voru meðal þess sem Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra lagði áherslu á í opnunarávarpi sínu á málþingi um öryggismál á norðurslóðum sem fram fór í Þjóðminjasafninu í dag.

Í ávarpi sínu áréttaði utanríkisráðherra mikilvægi þess lýðræðisríkin á norðurslóðum efldu samstarf sín á milli um öryggis- og varnarmál, stæðu vörð um gildi alþjóðalaga og Atlantshafsbandalagið héldi úti virku eftirliti og viðveru á svæðinu. 

„Ef það er ein leiðarstjarna í íslenskri utanríkistefnu þá eru það gildin og meginreglurnar sem endurspeglast í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum. Ísland má sín lítils í heimi þar sem valbeiting ræður ferðinni, sem er sú heimsmynd sem rússneskir og aðrir ólýðræðisleg valdhafar halda á lofti“, sagði Þórdís í ávarpi sínu. „Í mínum huga er það sjálfgefið að ekki er mögulegt að eiga í pólitísku samstarfi við Rússland á næstunni án þess að við göngum í berhögg við þessi sömu grunngildi sem eru undirstaðan í norðurslóðasamstarfi“, sagði ráðherra.

Málþingið í dag er afraksturinn af samstarfi íslenskra og kanadískra fræðimanna og stóðu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Varðberg, North-American and Arctic Defence and Security Network  og utanríkisráðuneytið að skipulagningu þess. 
  • Öryggismál á norðurslóðum í brennidepli - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum