Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2017 Innviðaráðuneytið

Sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði vegna tekna af skatti á fjármálafyrirtæki

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga er byggja á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Breytingin felur í sér að þrátt fyrir ákvæði í 9. gr. laganna skuli Jöfnunarsjóður á árinu 2017 greiða sérstakt framlag að fjárhæð 650 m.kr. sem skiptast skuli hlutfallslega milli sveitarfélaganna í samræmi við hlutdeild þeirra í álögðu heildarútsvari á árinu 2016.

Útreikningarnir byggja á meðfylgjandi reglugerð um greiðslur framlagsins, sem kveður á um að framlög að fjárhæð 550 m.kr. skuli greidd út fyrir 1. júlí 2017 og að þeim verði skipt hlutfallslega milli sveitarfélaga í samræmi við hlutdeild þeirra í álögðu heildarútsvari á árinu 2016. Eftirstöðvar framlagsins, samtals um 100 m.kr., skuli greiddar þegar álagt heildaútsvar ársins 2016 liggi fyrir, en eigi síðar en 1. nóvember 2017 og skal þeim skipt á milli sveitarfélaga með sömu aðferð.

Framlagið kom til greiðslu 30. júní sl.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum