Hoppa yfir valmynd
18. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 595/2020

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 595/2020

Fimmtudaginn 18. mars 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Erla Guðrún Ingimundardóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 16. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Fæðingarorlofssjóðs vegna umsóknar hennar um greiðslur úr sjóðnum.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna væntanlegrar barnsfæðingar X. Með ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 12. nóvember 2020, var fallist á umsókn kæranda. Í greiðsluáætlun með ákvörðun kom fram að mánaðarleg greiðsla til hennar yrði 255.304 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 16. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 19. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 25. nóvember 2020, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 1. desember 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að hinni kærðu ákvörðun verði hrundið og að fallist verði á að greiðslur úr verkfallssjóði verði teknar með sem viðmiðunartekjur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof.

Í kæru kemur fram að ákvörðun Fæðingarorlofssjóð byggi á því að horfa beri fram hjá þessum tekjum þar sem ekki sé greitt af þeim tryggingagjald og þar sem um styrk sé að ræða. Þessi rök ein og sér fá ekki staðist þar sem hið sama á meðal annars við um greiðslur dagpeninga úr sjúkrasjóði. Rökin fyrir því að taka eigi með greiðslur úr verkfallssjóði séu þau að horfa verði til grunnraka 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 og beita ákvæðinu með lögjöfnun um greiðslur úr verkfallssjóði. Greiðslur úr verkfallssjóðum stéttarfélaga séu skattskyldar með nákvæmlega sama hætti og sjúkradagpeningagreiðslur (sem listaðar séu sérstaklega upp í 13. gr. laganna og mynda grunn viðmiðunartekna). Sá sem fær greiðslur úr verkfallssjóði sé í ráðningarsambandi, en vegna ytri aðstæðna falla launagreiðslur tímabundið niður í verkfalli og réttur til verkfallsgreiðslna stofnast. Það væri andstætt tilgangi laganna að horfa fram hjá þessum greiðslum og skerða þannig rétt einstaklings til fæðingarorlofsgreiðslna.

III.  Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærður sé útreikningur sjóðsins á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof sé kveðið á um það að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns eða þann tíma þegar barn komi inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur, sbr. 2. og 5. mgr. 8. gr.

Óumdeilt sé að kærandi uppfylli skilyrði 1. mgr. 13. gr. laganna og eigi tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem starfsmaður samkvæmt 2. mgr. 7. gr., sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 12. nóvember 2019, þar sem fram komi að mánaðarleg greiðsla til hennar miðað, við 100% fæðingarorlof, verði 255.304 kr.

Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 sé meðal annars kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanna, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann mánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, greiðslur samkvæmt a- og b- liðum 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur samkvæmt III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e liði 2. mgr. 13. gr. a.

Í 2. mgr. 13. gr. laganna segir enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a., án tillits til þess hvort laun samkvæmt 2. málsl. eða reiknað endurgjald samkvæmt 5. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 3. mgr. 15. gr. laga nr. 95/2000 sé kveðið á um að útreikningur á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila samkvæmt 2., 5. og 6. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingardagur barns hafi verið þann 19. nóvember 2020 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði tímabilið maí 2019 til apríl 2020.

Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telji Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda.

Ágreiningur þessa máls lúti að því hvort greiðslur sem kærandi þáði úr vinnudeilusjóði í febrúar og mars 2020, samtals að fjárhæð 222.000 kr., skuli koma með til útreiknings á meðaltali heildarlauna hennar samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000.

Óumdeilt sé að ekki er greitt tryggingagjald af greiðslum úr vinnudeilusjóði samkvæmt 6. og 7. gr. laga nr. 113/1990 um tryggingagjald, sbr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og þar með teljist þær greiðslur ekki til launa eða annarra þóknana í skilningi 2. mgr. 13. laga nr. 95/2000.

Þá teljist greiðslur úr vinnudeilusjóðum ekki til þeirra annarra greiðslna sem taldar séu upp í 2. mgr. 13. laganna og koma til útreiknings á meðaltali heildarlauna en það séu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur út Atvinnuleysistryggingasjóði, greiðslur samkvæmt a- og b-liðum 5. gr. laga um Ábyrgðarsjóð launa, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur samkvæmt III. laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a-e liði 2. mgr. 13. gr. a.

Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun til kæranda, dags. 12. nóvember 2020, beri með sér réttan útreikning á greiðslum til hennar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi, dags. 12. nóvember 2020, um að mánaðarleg greiðsla til kæranda yrði 255.304 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof. Ágreiningur málsins lýtur að því hvort miða skuli við greiðslur úr verkfallssjóði, samtals að fjárhæð 222.000 kr., sem kærandi fékk í mars og apríl 2020, við útreikning á greiðslum til hennar úr sjóðinum.

Í 1. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Óumdeilt er að kærandi uppfyllir það skilyrði laganna og á tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Í 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til foreldris í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og skuli miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, greiðslur samkvæmt a- og b-liðum 5. gr. laga um Ábyrgðarsjóð launa, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur samkvæmt III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a-e liði 2. mgr. 13. gr. a laganna. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a, án tillits til þess hvort laun samkvæmt 2. málsl. eða reiknað endurgjald samkvæmt 5. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000 felur þátttaka á innlendum vinnumarkaði í sér að starfa sem starfsmaður, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna, en þar segir að starfsmaður sé hver sá sem vinnur launuð störf í annarra þjónustu í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði. Þá kemur fram í 2. mgr. 13. gr. a laganna að til þátttöku á innlendum vinnumarkaði teljist enn fremur:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til [sjúkratryggingastofnunarinnar samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og lögum um slysatryggingar almannatrygginga], eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Barn kæranda fæddist þann X. Samkvæmt framangreindum lagaákvæðum skal því mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði tímabilið maí 2019 til og með apríl 2020.

Í 3. mgr. 15. gr. laganna er kveðið á um að útreikningur á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldskrá skattyfirvalda.

Óumdeilt er að ekki er greitt tryggingagjald af greiðslum úr verkfallssjóði, sbr. ákvæði laga nr. 113/1990 um tryggingagjald. Af texta 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 verður ekki séð að umræddar greiðslur til kæranda uppfylli áskilnað 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna um að teljast til launa eða þóknana samkvæmt lögum um tryggingagjald, auk þess sem greiðslurnar teljast ekki vera greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, greiðslur samkvæmt a- og b-liðum 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur samkvæmt III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. 

Þar sem ekki var greitt tryggingagjald af umræddum greiðslum og þær ekki tilgreindar sem þátttaka á innlendum vinnumarkaði samkvæmt framangreindu er ekki heimilt gegn skýrum fyrirmælum 2. mgr. 13. gr., sbr. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 95/2000, að líta til þeirra greiðslna við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda.

Með vísan til alls framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

   


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 12. nóvember 2020, um mánaðarlegar greiðslur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum