Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 676/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 16. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 676/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21110095

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 12. maí 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. febrúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 17. maí 2021. Þann 24. maí 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni hafnað með úrskurði kærunefndar þann 11. júní 2021.

Þann 29. nóvember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd þann 8. desember 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og þann 9. desember 2021 frá Útlendingastofnun. Athugasemdir bárust frá kæranda þann 13. desember 2021.

Af greinargerð kæranda má ætla að beiðni hans um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda kemur fram að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 28. nóvember 2020. Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum þar til endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi og að tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn hér á landi sé stjórnvöldum skylt að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU17090040 frá 24. október 2017 máli sínu til stuðnings.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 28. nóvember 2020 og hefur hann ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og því kemur til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 6. desember 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra barst kærunefnd þann 8. desember 2021 en þar kemur m.a. fram að stoðdeild hafi borist verkbeiðni í máli kæranda þann 5. júlí 2021. Þann 19. ágúst 2021 hafi verið haft samband við kæranda símleiðis og hann boðaður á fund. Kærandi hafi greint frá því að vera veikur og sagðist komast á fund stoðdeildar þann 26. ágúst 2021. Þann 26. ágúst 2021 hafi kærandi sent smáskilaboð um að hann kæmist ekki sökum þess að hann væri að fara í mosku. Kærandi var boðaður á fund stoðdeildar þann 30. ágúst 2021. Á fundinum hafi kærandi greint frá því að vera reiðubúinn að fara til viðtökuríkis en að hann þyrfti að fá tíma til að ganga frá sínum málum. Stoðdeild hafi heimilað það en kærandi hafi ætlað að hafa samband við stoðdeild þegar hann væri reiðubúinn að fara. Þann 1. október 2021 hafi kærandi sent smáskilaboð á stoðdeild þess efnis að hann væri tilbúinn að fara til viðtökuríkis þann 5. október 2021 sem stoðdeild samþykkti. Kærandi hafi greint frá því að vera bólusettur vegna Covid-19 og var honum gerð grein fyrir því að hann þyrfti að óska eftir bólusetningarvottorði sem hann kvaðst ætla að gera. Í kjölfarið hafi stoðdeild hafið undirbúning á flutningi kæranda til viðtökuríkis, s.s. með því að bóka farmiða og ganga frá öðrum formsatriðum. Þann 4. október 2021 hafi verið haft samband við kæranda til að athuga hvort hann þyrfti einhverja aðstoð vegna fyrirhugaðs flutnings en þá hafi kærandi greint frá því að vera hættur við. Stoðdeild hafi farið heim til kæranda en hann hafi ekki verið þar. Stoðdeild hafi í kjölfarið afbókað fyrirhugaða ferð. Svar frá Útlendingastofnun barst kærunefnd þann 9. desember 2021 en þar kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt á.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 9. desember 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar ríkislögreglustjóra og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann 13. desember 2021. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi komið hingað til lands þann 28. nóvember 2020. Kærandi hafi þann 4. október 2021 hætt við að fara sjálfviljugur til viðtökuríkis en þá hafi enn verið 56 dagar þar til að 12 mánaða fresturinn sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga rynni út. Kærandi telur að honum sé frjálst að breyta afstöðu sinni til fyrirhugaðs flutnings enda hafi hann ekki komið í veg fyrir frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar til þess að undirbúa flutning. Kærandi byggir þannig á því að yfirlýsing um breytta afstöðu til fyrirhugaðs flutnings geti ekki ein og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins en af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir til að undirbúa flutning kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Í þessu samhengi vísar kærandi til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21070020, dags. 26. ágúst 2021, og KNU21080008, dags. 22. september 2021.

Líkt og að framan greindir lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 28. nóvember 2020. Þegar stoðdeild ríkislögreglustjóra hafði fyrst samband við kæranda og hann kvaðst tilbúinn að ferðast sjálfviljugur til Ítalíu, var rúmur tími til þess að framkvæma flutning á kæranda til viðtökuríkis áður en 12 mánaða fresturinn sem áskilinn er í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga rann út. Kærandi greindi stoðdeild, þann 1. október 2021, frá því að hann væri reiðubúinn að fara til viðtökuríkis þann 5. október 2021 og að hann væri bólusettur vegna Covid-19. Í kjölfarið hóf stoðdeild undirbúning á flutningi kæranda til viðtökuríkis og var bókaður farmiði til viðtökuríkis með áætlað flug þann 5. október 2021. Þann 4. október 2021 greindi kærandi stoðdeild frá því símleiðis að honum hefði snúist hugur. Stoðdeild fór í kjölfarið á dvalarstað hans en þar var hann ekki að finna. Vegna breyttrar afstöðu kæranda var farmiði hans afbókaður. Að mati kærunefndar er ljóst að það sem komið hafi í veg fyrir framkvæmd á flutningi kæranda til viðtökuríkis innan tilskilins frests, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, hafi verið skortur á samstarfsvilja hans. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning sinn úr landi.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU21070020 og KNU21080008 frá 26. ágúst og 22. september 2021 tekur kærunefnd fram að það sé mat hennar að framkvæmd stoðdeildar í fyrirliggjandi máli hafi verið markviss en stoðdeild hafi verið í stöðugu sambandi við kæranda í tengslum við fyrirhugaðan flutning og pantað farmiða til viðtökuríkis í samráði við kæranda.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að kærandi hafi tafið afgreiðslu umsóknar sinnar og það hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. er ekki uppfyllt.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli hans, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellants’ request is denied.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                 Sandra Hlíf Ocares

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum