Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 335/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 335/2016

Miðvikudaginn 16. nóvember 2016

A

gegn

Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með ódagsettri kæru, sem barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 6. september 2016, kærði A, ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 27. maí 2016, um bætur úr slysatryggingum almannatrygginga.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi, dags. 27. maí 2016, var kæranda tilkynnt um ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands á varanlegri læknisfræðilegri örorku hans vegna slyss þann X.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 6. september 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. september 2016, var kæranda tilkynnt um að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og var honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Með bréfi, dags. 26. september 2016, bárust athugasemdir frá kæranda.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru er þess krafist að ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um slysabætur frá 27. maí 2016 verði endurskoðuð.

Í skýringum kæranda kemur fram að ástæða þess að kæra hafi borist of seint sé sú að slysaskýrsla fyrir B hafi ekki borist kæranda fyrr en að liðnum kærufresti og hún sé mikilvæg í máli kæranda.

III. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 27. maí 2016, á varanlegri læknisfræðilegri örorku vegna slyss kæranda þann X.

Samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Samkvæmt gögnum málsins liðu þrír mánuðir og tíu dagar frá því að lögmanni kæranda var tilkynnt um ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands þann 27. maí 2016 þar til kæra barst úrskurðarnefndinni þann 6. september 2016. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um sjúkratryggingar og 5. gr. laga um úrskurðanefnd velferðarmála, var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

  1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

  2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun frá 27. maí 2016 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndarinnar og um tímalengd kærufrests. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 13. september 2016, var kæranda veittur kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga gætu átt við í málinu. Í bréfi kæranda, dags. 26. september 2016, er greint frá ástæðu þess að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Fram kemur að slysaskýrsla fyrir B, sem kærandi telji mikilvæga í málinu, hafi ekki borist kæranda fyrr en að liðnum kærufresti. Fram kemur í gögnum málsins að B sé samstarfsmaður kæranda og hafi einnig orðið fyrir hinu bótaskylda slysi.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála eru framangreindar ástæður ekki þess eðlis að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Með hliðsjón af framangreindu er kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 37/1993.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum