Hoppa yfir valmynd
1. mars 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál. nr. 22/2019 Úrskurður 1. mars 2019

Mál nr. 22/2019                    Eiginnafn:     Sigarr (kk.)

 

 

Hinn 1. mars 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 22/2019 en erindið barst nefndinni 18. febrúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  5. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú. Litið hefur verið svo á að sá ritháttur, sem sótt er um, að nafnið endi á -arr, sé ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Á 14. öld styttist „langt r“ í bakstöðu (þ.e. aftast í orði) í áherslulitlum endingum. Dæmi: Ragnarr > Ragnar, hamarr > hamar, jöfurr > jöfur. Slík orð eru ævinlega rituð með einu r-i skv. stafsetningu nútímamáls. „Langt r“ kemur hins vegar fyrir í bakstöðu í áhersluatkvæðum í ýmsum orðum, sbr. kjarr og kurr. Dæmi um rithátt sem fallist hefur verið á af hálfu mannanafnanefndar í samræmi við framangreint er millinafnið Gnarr.

Af þessu leiðir að niðurstaða um það hvort rétt sé að fallast á ritháttinn Sigarr veltur á því hvort hann teljist hefðaður í skilningi 5. gr. laga um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Nafnið Sigarr kemur fyrir í forníslenskum ritum en eigi að síður verður að líta svo á að nafnið sé tökunafn í skilningi vinnulagsreglna mannanafnanefndar þar sem það fellur ekki að hefðbundnum reglum íslensks máls.

Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn karl, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna um hefð, nafnið Sigarr. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920.

Hins vegar liggur fyrir að nafnið Sigarr kemur fyrir í alþekktum útgáfum á íslenskum fornritum, t.d. Landnámabók og Snorra-Eddu, og því telst nafnið hafa unnið sér menningarhelgi samkvæmt 3. gr. vinnulagsreglna mannanafnanefndar um hefð, sbr. úrskurði nefndarinnar í t.d. máli 71/2009 (Hávarr), máli 3/2011B (Annarr) og máli 20/2017 (Ónarr). Nafnið Sigarr beygist svo: nf. Sigarr, þf. Sigar, þgf. Sigari, ef. Sigars.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Sigarr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum