Hoppa yfir valmynd
3. september 2019 Utanríkisráðuneytið

Herferðir gegn plastmengun í september

Ein af kynnarmyndum átaksins um hreinsun stranda.  - mynd

Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) tekur ásamt Evrópusambandinu og fleirum þátt í strandhreinsunarátakinu #EUBeachCleanUp. Í frétt á vef skrifstofunnar segir að gott sé að hreinsa strendur af plasti, enn betra sé að höggva að rótum vandans. „Plast er orðinn svo snar þáttur í lífi okkar að við tökum varla eftir því lengur. Það er ódýrt, þægilegt og alls staðar.“

Markmiðið er að efla vitund almennings og hvetja til aðgerða. Fram kemur í fréttinni að ekki sé víst að allir átti sig á því að á 70% plasts sé ekki endurunnið og mikið af því fjúki á haf út eða í á og læki, eins og plastmengunin á ströndum sé til marks um. Talið er að fimm milljón milljónir stórra og smárra plasteininga séu á floti í hafinu

Blái herinn hefur verið samstarfsaðili þeirra sem að átakinu standa á Íslandi. Marglytturnar, hópur áhugakvenna um útivist og náttúruvernd ætlar að synda yfir Ermasunds á næstu dögum til stuðnings Bláa hernum og til að vekja athygli á plastmengun í sjónum. Strendur verða hreinsaðar í rúmlega 80 löndum frá Belgíu til Grænhöfðaeyja í samstarfi við heimamenn á hverjum stað, skóla og æskulýðssamtök. Ungmennafulltrúi Sameinuðu þjóðanna tekur líka þátt í átakinu, en í hverjum mánuði beitir hann sér fyrir 31 dags herferð ungs fólks í tengslum við Loftslagsráðstefnu unga fólksins í New York.

Minna má á að hér heima er í gangi herferðin „Plastlaus september“ sem er árvekniátak til að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega, ásamt því að leita leiða til að minnka notkunina.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum