Hoppa yfir valmynd
4. september 2018

Fáni fyrir nýja þjóð

6.-13. september 2018

Galerie Joseph
123 rue de Turenne
75003 Paris

Árið 1914 kallaði fánanefnd eftir tillögum frá almenningi að íslenskum þjóðfána. Ein tillaganna er núverandi þjóðfáni Íslands.

Alls bárust 28 hugmyndir, flestar í rituðu máli. Grafíski hönnuðurinn Hörður Lárusson byggði nýverið á lýsingunum, rannsakaði frekar og bætti upp með eigin hugmyndaflugi og umbreytti tillögum í myndrænt form. Afraksturinn var gefinn út á bók, sem nefnist einfaldlega Fáninn.

Sýningin Fáni fyrir nýja þjóð opnar á hönnunarhátíðinni Paris Design Week í Galerie Joseph í París 6. september og stendur til 13. september. Þar mun gefa að líta úrval tillaganna, þeirra á meðal óhefðbundinn fána saumaðan eftir teikningu Jóhannesar Kjarval. Einnig verður frumsýndur fáni, teiknaður og saumaður eftir lýsingum sjálfs Danakonungs, Kristjáns X, sem nýverið fundust í dagbókarfærslum konungs.

Þjóðfáni er án efa eitt sterkasta táknræna form sjálfsvitundar þjóðar, og þessi sýning mun veita innsýn í hvernig einstaklingar, allt frá almennum borgurum til konungs, gerðu tilraunir til að hanna sérkenni íslensku þjóðarinnar.

Sýningin er unnin í samvinnu við Sendiráð Íslands í París og Hönnunarmiðstöð Íslands að tilefni af aldarafmæli fullveldisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum