Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2019 Utanríkisráðuneytið

Þór H. Ásgeirsson ráðinn forstöðumaður Sjávarútvegsskólans

Nemendur Sjávarútvegsskólans árið 2017 Þór H. Ásgeirsson lengst til hægri á myndinni. Ljósmynd: UNU-FTP - mynd

Þór Heiðar Ásgeirsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og tekur við starfinu um næstu mánaðamót.

Þór hefur gengt stöðu aðstoðarforstöðumanns skólans frá árinu 1999 og komið að stjórnun skólans, þróun hans og námskeiðahaldi um tuttugu ára skeið. Hann var einnig starfandi forstöðumaður árin 2008 og 2009 í fjarveru Tuma Tómassonar sem þá gegndi starfi umdæmisstjóra þróunarsamvinnu á Srí Lanka. Þór hefur því yfirgripsmikla þekkingu á allri starfsemi skólans, þar með talið stjórnun, skipulagningu náms, fjármálum og starfsmannahaldi og hefur séð um gerð kennslu- þjónustu- og samstarfssamninga bæði innanlands og utan.

Þór er með tvöfalda meistaragráðu, M.Ed. í raungreinakennslu frá Boston University og M.Sc. í sjávarvistfræði frá University of Massachusetts.

Alls voru 11 umsækjendur um starfið. Valnefnd samþykkti einróma að leggja til að Þór yrði boðið starfið og tillaga þess efnis var samþykkt einróma af stjórn skólans í síðustu viku.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum