Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2022 Utanríkisráðuneytið

Tvær milljónir barna utan skóla í Pakistan vegna flóða

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Tvær milljónir barna í Pakistan glata réttindum sínum til menntunar í kjölfar verstu flóða í sögu landsins sem eyðilögðu og skemmdu um 27 þúsund skóla. „Eftir að hafa upplifað eitt lengsta tímabil án skóla í veröldinni vegna heimsfaraldursins þá bíður þessara barna áframhaldandi óvissa sem ógnar framtíð þeirra,“ segir Robert Jenkins, alþjóðlegur yfirmaður menntamála hjá UNICEF, eftir að hafa heimsótt flóðasvæði Pakistan í vikunni.

Um tveir mánuðir eru liðnir frá því milljónir Pakistana misstu heimili sín, lífsviðurværi og öryggi. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, lætur í ljós áhyggjur af skori á aðgengi að menntun eftir hamfarirnar.

„Hamfaraflóðin í Pakistan lögðu undir sig stóran hlut landsins og á þeim svæðum sem verst urðu úti sést enn rétt svo í húsþök skólabygginga, tveimur mánuðum síðar. Því lengur sem skólar eru lokaðir því meiri hætta er á börn eigi ekki afturkvæmt á skólabekk sem aftur eykur hættuna á þau endi í barnaþrælkun, barnahjónaböndum eða sem þolendur annars konar misnotkunar og ofbeldis,“ segir í frétt frá UNICEF.

Þar kemur enn fremur að á þeim svæðum sem urðu verst úti í flóðunum hafi verið fyrir viðkvæm samfélög. „Einn af hverjum þremur drengjum og stúlkum voru ekki í skóla fyrir hamfarirnar og helmingur barna glímdi við vaxtar- og þroskaskerðingar sökum vannæringar. UNICEF lýsir áhyggjum sínum yfir því að núverandi ástand geti aukið þá neyð.“

UNICEF hefur komið upp rúmlega 500 tímabundnum skólasvæðum á verst settu svæðunum og veitt nemendum og kennurum stuðning með skólagögnum. Að auki þjálfar UNICEF kennara til veita sálfélagslega aðstoð og heilsueftirlit og styðja þannig við andlega og líkamlega heilsu barna.

„Fyrir mörg börn sem aldrei höfðu haft aðgengi að skóla eru þessi tímabundnu kennslusvæði þeirra fyrsta reynsla af námi. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að þau haldi áfram að mennta sig þegar þau snúa aftur heim,“ segir Jenkins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum