Hoppa yfir valmynd
4. maí 2023

Mál nr. 109/2023 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 109/2023

Fimmtudaginn 4. maí 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. febrúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. desember 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 30. september 2022 og var umsóknin samþykkt 19. október 2022. Þann 4. nóvember 2022 var kæranda tilkynnt að hún yrði boðuð á námskeiðið Uppleið á vegum Austurbrúar. Kæranda var greint frá því að 80% skyldumæting væri á námskeiðið og að boða þyrfti öll forföll til Vinnumálastofnunar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna mætingarhlutfalls á námskeiðið. Engar skýringar bárust frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. desember 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Skýringar bárust frá kæranda 29. desember 2022. Í kjölfar skýringa kæranda var mál hennar tekið upp að nýju hjá Vinnumálastofnun. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. desember 2022, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. febrúar 2023. Með bréfi, dags. 2. mars 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. mars 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. mars 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að Vinnumálastofnun hefði ákveðið að kærandi skyldi sækja námskeið. Kærandi sé í afleysingum og henni hafi boðist afleysingar á þeim tímum sem námskeiðið hafi verið haldið. Kærandi hafi ekki haft tækifæri á að sækja námskeiðið á öðrum tíma. Kærandi hafi einnig farið í frí frá námskeiðinu þar sem hún hafi farið með eiginmanni sínum í fræðsluferð á vegum B. Kærandi hafi mætt í alla tíma sem hún hafi komist í og klárað verkefnin sem hún hafi átt að skila. Kærandi hafi þó gleymt einum tíma þar sem ekki hafi verið sendir póstar til að minna á tímana. Kæranda þyki óskiljanlegt hvers vegna henni sé refsað fyrir að taka vinnu í afleysingum.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 30. september 2022. Með erindi, dags. 19. október 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Kærandi hafi verið boðuð á námskeiðið Uppleið þann 4. nóvember 2022. Um hafi verið að ræða fjarnámskeið á vegum Austurbrúar. Námskeiðið hafi verið haldið í ellefu skipti, frá 9. nóvember til 14. desember. Í umræddri boðun hafi kæranda verið greint frá því að gerð væri krafa um 80% mætingu og að öll forföll bæri að tilkynna til Vinnumálastofnunar. Kæranda hafi einnig verið tilkynnt að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar á greiðslu atvinnuleysisbóta. Áminning um umrætt námskeið hafi verið send á uppgefið netfang kæranda, með skilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þann 15. nóvember 2022.

Þann 24. nóvember 2022 hafi kærandi átt í samskiptum við starfsmann Vinnumálastofnunar símleiðis. Kærandi hafi greint frá því að hún hefði ekki getað mætt á umrætt námskeið til þessa þar sem hún tæki stöku sinnum tilfallandi vinnu að sér.

Tilkynning hafi borist Greiðslustofu Vinnumálastofnunar þann 19. desember 2022 þess efnis að kærandi hafi aðeins mætt í sjö skipti á umrætt námskeið. Með erindi, dags. 20. desember 2022, hafi kæranda verið boðið að koma að skýringum vegna fjarveru sinnar á námskeið. Kæranda hafi verið greint frá því að hafi hún hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Engar skýringar hafi borist frá kæranda.

Með erindi, dags. 28. desember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 29. desember 2022 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Að sögn kæranda hafi hún sent stofnuninni tilkynningar þess efnis að hún hafi tekið að sér vinnu. Af þeirri ástæðu hafi hún ekki getað mætt í þrjá daga á umrætt námskeið. Jafnframt hafi hún sent stofnuninni tilkynningu þess efnis að hún yrði erlendis og myndi því missa af tveimur dögum af námskeiðinu.

Í kjölfar framangreindra skýringa hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun. Með erindi, dags. 29. desember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hennar, enda væri sú ákvörðun efnislega rétt niðurstaða, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hennar.

Meðal gagna málsins sé ferðaáætlun vegna ráðstefnu erlendis sem kærandi hafi sótt á vegum B en Vinnumálastofnun hafi borist umrædd ferðaáætlun þann 6. mars 2023. Þar komi fram að kærandi hafi verið erlendis á tímabilinu 15. nóvember til 19. nóvember 2022. Kærandi hafi afhent Vinnumálastofnun reikning vegna ráðstefnugjalds sem kærandi hafi greitt vegna umræddrar utanlandsferðar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að gera kæranda að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en kærandi hafi ekki uppfyllt lágmarks mætingarskyldu á námskeiðið Uppleið.

Samkvæmt [h-lið] 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæðið 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Kærandi hafi verið boðuð á námskeiðið Uppleið sem hafi verið haldið í ellefu skipti frá 9. nóvember til 14. desember 2022. Kæranda hafi verið tilkynnt að gerð væri krafa um að minnsta kosti 80% mætingu og að öll forföll bæri að tilkynna til Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi hins vegar aðeins mætt í sjö skipti á umrætt námskeið. Því hafi kærandi ekki uppfyllt lágmarks mætingarskyldu. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæði 1. mgr. 58. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Umrætt námskeið hafi verið haldið í ellefu skipti en fyrir liggi að kærandi hafi aðeins mætt í sjö skipti. Kæranda hafi verið greint frá því að 80% mætingarskylda væri á námskeiðið en í því felist að kæranda hafi borið að mæta í að minnsta kosti níu skipti á námskeiðið. Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið. Kærandi hafi greint frá því að hún hafi tekið að sér tilfallandi vinnu í nokkur skipti. Þá hafi hún verið erlendis á tímabilinu 15. nóvember til 19. nóvember 2022 og þar með misst af tveimur námskeiðsdögum. Kærandi hafi gleymt einum námskeiðsdegi.

Að mati Vinnumálastofnun séu framangreindar skýringar kæranda ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Fallast megi á með kæranda að fjarvera hennar á námskeið sökum þess að hún hafi tekið að sér vinnu sé réttmæt og feli í sér gildar skýringar. Aftur á móti liggi fyrir að kærandi hafi verið erlendis tvo daga námskeiðsins. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi kærandi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um fyrirhugaða utanlandsferð sína. Í raun hafi það ekki verið fyrr en stofnunin hafi óskað skýringa á ástæðum þess að kærandi hafi ekki mætt til umrædds viðtals að stofnuninni hafi borist þær upplýsingar að hún hafi verið erlendis. Að mati Vinnumálastofnunar sé það ekki gild ástæða fyrir fjarveru á námskeið stofnunarinnar að atvinnuleitendur, sem boðaðir hafi verið til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, fari til útlanda og skrái sig í orlof á meðan á vinnumarkaðsaðgerðum stendur. Í því samhengi skipti ekki máli hvort um sé að ræða einhvers konar fræðsluferð, líkt og í tilfelli kæranda. Eins og kveðið sé á um í 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir beri atvinnuleitendum skylda til þess að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem standi þeim til boða. Þá þyki stofnuninni ljóst að þær skýringar kæranda að hún hafi gleymt einum námskeiðsdegi séu ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi hafi kærandi gert athugasemdir við það að henni hafi ekki verið send áminning um hvenær námskeiðið ætti að fara fram. Í því samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að auk þeirrar boðunar sem kæranda hafi verið send þann 4. nóvember 2022 á umrætt námskeið hafi henni jafnframt verið sendur tölvupóstur, smáskilaboð í farsíma og tilkynning á ,,Mínum síðum“ þann 15. nóvember 2022 þar sem hún hafi verið minnt á að standast þyrfti 80% mætingarskyldu til að ljúka námskeiðinu. Að mati Vinnumálastofnunar verði að gera þær kröfur til atvinnuleitenda sem boðaðir hafi verið til þátttöku í vinnumarkaðsúrræði að þeir geri viðeigandi ráðstafanir og muni hvenær þeir eigi að mæta. Í ljósi framangreinds sé það niðurstaða stofnunarinnar að í þrjú skipti hafi kærandi ekki mætt á umrætt námskeið og ekki haft þar að baki gildar skýringar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Því hafi kærandi ekki uppfyllt þá kröfu sem gerð hafi verið um 80% mætingu.

Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki verið með fullnægjandi mætingu á umrætt námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Því beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé því sú að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 4. nóvember 2022 boðuð á námskeiðið Uppleið sem var haldið  í ellefu skipti á tímabilinu 9. nóvember til 14. desember 2022. Kæranda var greint frá því að 80% skyldumæting væri á námskeiðið og að boða yrði öll forföll á netfangið [email protected]. Kærandi mætti í sjö af ellefu skiptum á námskeiðið. Vinnumálastofnun hefur fallist á að kærandi sé með gilda ástæðu fyrir því að mæta ekki í eitt skipti vegna vinnu sem hún tók að sér. Hins vegar liggur fyrir að kærandi var erlendis á tímabilinu 15. til 19. nóvember 2022. Þar sem námskeiðið var kennt á miðvikudögum og föstudögum missti hún því af tveimur námskeiðsdögum af þeim sökum. Einnig hefur kærandi greint frá því að hún hafi gleymt einum degi námskeiðsins. Kærandi mætti því í átta af ellefu skiptum á námskeiðið og uppfyllti þar með ekki skilyrði um 80% mætingu.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki uppfyllt framangreinda mætingarskyldu vegna vinnumarkaðsúrræðis sem henni var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 28. desember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

___________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum