Hoppa yfir valmynd
11. júní 2020 Utanríkisráðuneytið

Ísland einn stærsti styrktaraðili UNICEF á heimsvísu miðað við höfðatölu

Ljósmynd úr ársskýrslu UNICEF. - mynd

Íslendingar eru líkt og áður meðal stærstu styrktaraðila Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á heimsvísu miðað við höfðatölu þegar litið er til heildarframlaga frá ríki, almenningi og fyrirtækjum. Þetta kom fram á ársfundi UNICEF á Íslandi í gær,

Á fundinum kynnti Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, helstu niðurstöður úr ársskýrslu félagsins sem gefin hefur verið út. Þar má sjá að söfnunarfé UNICEF á Íslandi nam rúmum 727 milljónum króna í fyrra. Eins og undanfarin ár var framlag Heimsforeldra stærsti liðurinn í tekjum landsnefndarinnar, tæp 83%. „Engin önnur landsnefnd UNICEF safnar hlutfallslega hærri framlögum og er það ómetanlegum stuðningi heimsforeldra okkar að þakka,“ segir í frétt frá samtökunum.

Stærstum hluta var varið til almenns hjálparstarfs UNICEF í þeim löndum þar sem þörfin er mest, rúmum 493 milljónum króna. Heildarframlög til neyðar á árinu 2019 námu tæpum 13 milljónum króna. Árið 2019 jukust framlög til innanlandsverkefna um tæp 44% og sýnir þessi aukning aukið vægi UNICEF í réttindagæslu og verkefnum tengd börnum á Íslandi.

Í ársskýrslunni má einnig lesa að 77% af öllu því fé sem landsnefnd UNICEF á Íslandi safnaði á síðasta ári fór til baráttu UNICEF fyrir réttindum og lífi barna um allan heim. Kostnaður við fjáröflun, kynningarmál, stjórnun og rekstur skrifstofu nam 23 prósentum af söfnunarfé. Það þýðir að af hverjum 100 krónum sem gefnar voru til UNICEF á Íslandi á árinu 2019 fór 1 króna í stjórnun, rúmar 3 krónur í kynningarmál og tæpar 19 krónur í að safna næstu 100 krónum og hjálpa enn fleiri börnum.

Íslensk fyrirtæki studdu dyggilega við verkefni UNICEF á árinu. Kvika, Lindex og Te & Kaffi voru fremst í flokki samstarfsfyrirtækja árið 2019, en fjöldi fyrirtækja studdi einnig við starf UNICEF með kaupum á Sönnum gjöfum yfir árið.

Þegar allt er talið saman, söfnunarfé frá landsnefnd UNICEF á Íslandi auk stuðningi íslenska ríkisins við UNICEF og verkefni stofnunarinnar víða um heim, er Ísland sem heild enn á ný einn stærsti styrktaraðili UNICEF á heimsvísu miðað við höfðatölu.

„UNICEF á Íslandi sannaði styrk sinn enn eitt árið. Rúmlega hálfur milljarður króna var sendur utan í hjálparstarf UNICEF, á staði þar sem þörfin er mest,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

1 Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum