Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2018 Utanríkisráðuneytið

„Ánægja með verkefnið og ávinning landanna"

Utanríkisráðuneytið hélt í vikunni rýnifund um jarðhitaverkefnið sem Ísland hefur rekið með Norræna Þróunarsjóðnum (NDF) síðastliðin sex ár. Fundurinn var haldinn í Kigali, höfuðborg Rúanda, en þar fer nú fram sjöunda jarðhitaráðstefnan undir merkjum ARGeo, African Rift Geothermal Conference.

Íslendingar hafa á þessum sex árum leitt umfangsmikið samstarf um jarðhitarannsóknir í Austur-Afríku en verkefninu lauk formlega í lok síðasta ár. Framkvæmd nokkurra verkþátta sem ekki tókst að ljúka hefur verið fram haldið á þessu ári.

Jarðhitaverkefni Íslands og Norræna þróunarsjóðsins var liður í samstarfi Íslands og Alþjóðabankans um aukna jarðhitanýtingu í Austur-Afríku. Verkefnið miðaði að því að aðstoða þjóðir í Sigdalnum mikla í austurhluta Afríku við frumrannsóknir á jarðhita til að fá úr því skorið hvort nýtanlegan jarðhita sé að finna.

Að sögn Davíðs Bjarnason deildarstjóra á þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins var á rýnifundinum farið yfir framgang verkefnisins og árangur, með fulltrúum samstarfslanda og stofnana.

„Fulltrúar samstarfslandanna lýstu á fundinum ánægju með verkefnið og ávinning landanna af því, ásamt því sem óskir komu fram um áframhaldandi samstarf, meðal annars á sviði þjálfunar og beinnar nýtingar jarðhita,“ segir Davíð.

Á síðasta ári var skrifað undir áframhaldandi samstarf við Umhverfisstofnun SÞ (UN Environment, UNEP) í Næróbí um jarðhitaþróun í Austur-Afríku undir ARGeo-verkefninu. Því er meðal annars ætlað að styðja Kenía og nágrannaríki að setja á stofn þjálfunarmiðstöð í jarðhita á svæðinu. Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi kemur einnig að þjálfun og ráðgjöf í tengslum við það verkefni og reiknað er með að íslensk sérþekking nýtist vel í því starfi.

ARGeo

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum