Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntasamstarf Íslands og Suður-Kóreu

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði á dögunum samstarfsyfirlýsingu íslenskra og suður-kóreskra stjórnvalda um að efla samstarf landanna á sviði menntamála. Samkomulagið snýr fyrst og fremst að samvinnu á vettvangi háskóla.

„Þetta samkomulag snertir á mikilvægum þáttum eins og upplýsingamiðlun um umbætur í menntamálum, viðurkenningu prófgráða, tungumálanám, kennaramenntun og virkari samstarfstengslum milli háskóla, rannsóknamiðstöðva og annarra menntastofnana landanna. Þá höfum við einnig á hug á því að skoða hvort koma eigi á gagnkvæmum námsstyrkjum milli Íslands og Suður-Kóreu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Kveikjan að samkomulaginu var fundur Lilju með Kim Sang-Kon þáverandi menntamálaráðherra og varaforsætisráðherra Suður-Kóreu í Seúl árið 2018:

„Við höfum mörgu að miðla en einnig margt að læra af reynslu Suður-Kóreu sem stendur framarlega á ýmsum sviðum í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að menntamálum, tækniþróun og samkeppnishæfni. Ég horfi ekki síst til þess hvernig þeim hefur tekist að efla umgjörð í kringum störf kennara og starfsþróun þeirra, og hvernig menntakerfið þeirra hefur þróast með aukinni tæknivæðingu,“ segir ráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum