Hoppa yfir valmynd
18. október 2023 Matvælaráðuneytið

Hringrásarhagkerfið í brennidepli á Matvælaþingi 2023

Frá Matvælaþingi 2022. - mynd

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra boðar til Matvælaþings 2023 sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu 15. nóvember nk.

Hringrásarhagkerfið, í samhengi við nýsamþykkta matvælastefnu til ársins 2040, er meginviðfangsefni þingsins sem er nú haldið í annað sinn.

Á þinginu koma saman undir einu þaki þær fjölmörgu og ólíku starfsgreinar sem koma að framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla á Íslandi. Þar myndast vettvangur fyrir samræðu milli neytenda, stjórnvalda og framleiðenda um matvæli í hringrásarhagkerfinu.

Gestafyrirlesararnir Ladeja Godina Košir frá Circular Change samtökunum í Slóveníu og Anne Pøhl Enevoldsen frá dönsku matvælastofnuninni munu flytja erindi um innleiðingu hringrásarhagkerfis í matvælaframleiðslu á alþjóðlega vísu.

Einnig verða haldnir örfyrirlestrar og pallborð um afmörkuð efni s.s. nýtingu hráefnis, kolefnisspor og sóun í matvælakeðjunni á Íslandi, framleiðslu sem styður við hringrásarhagkerfið og framtíð matvælaframleiðslu.

Ari Eldjárn mun einnig stíga á stokk á þinginu og fjalla á sinn hátt um hringrásarhagkerfið og þær áskoranir sem þar blasa við okkur í daglegu lífi.

Þingið verður sett klukkan 9:00 og lýkur klukkan 16:00.

Dagskrá Matvælaþings 2023

Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir

8.45    Silfurberg opnar - Léttar veitingar

9.15    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setur Matvælaþing 2023

9.30    Anne Pøhl Enevoldsen sviðsstjóri hjá dönsku Matvælastofnuninni
          Working with sustainability through food based dietary guidelines

9.55    Léttum sporið í matvælaframleiðslu - Kolefnisspor og sóun í   
           matvælakeðjunni     

  • Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftlagsmála hjá Brimi
    Nauðsynleg innihaldsefni í uppskrift að hringrásarhagkerfi
  • Jóhannes Urbancic, sérfræðingur á Umhverfisstofnun
    Umfang matarsóunar á Íslandi

10.45   Ari Eldjárn - uppistand

10:50   Kaffihlé

11.10   Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb
           Gögn og gæði. Rannsókn á nýtingarhlutfalli lambakjöts og aukaafurða

11.25   Leynast lausnir í leifunum? - Nýting hráefna - engu hent

  • Guðmundur Kristján Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Genís hf 
  • Kristín Helga Schiöth,  verkefnastjóri Líforkugarða 
  • Magnús Jóhannsson, fagteymisstjóri nýsköpunar og hringrása hjá Landgræðslunni 
  • Eva Margrét Jónudóttir, verkefnastjóri hjá Matís

11:55   Hádegisverður

13.00   Anna María Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Coolity
           Frá jörðu til jarðar

13.15   Hringrás í hverju skrefi - Framleiðsla sem styður við hringrásarhagkerfið

  • Anna María Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Lífrænu Íslandi
  • Arna María Hálfdánardóttir, markaðsstjóri Örnu
  • Helgi Eyleifur Þorvaldsson, Lbhí, formaður starfshóps um eflingu kornræktar
  • Jón Trausti Kárason, forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum
  • Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri Arnarlax 

13.40   Valdimar Sigurðsson, prófessor við HR
           Neytendahegðun og virk smásala

13.55   Neytum, nærumst, njótum – Neytendur

  • Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
  • Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur og grænkeri
  • Tjörvi Bjarnason, framkvæmdastjóri Matlands
  • Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu

14.20   Ari Eldjárn - uppistand

14.25   Ladeja Godina Košir, stofnandi og framkvæmdastjóri Circular Change
            Dynamic world of circular economy principles and sustainable food systems,
            offering insights into the future of food systems in Iceland, Slovenia, and the
            broader European context

14.50   Birgir Örn Smárason, fagstjóri hjá Matís
           Hvað er í matinn árið 2050? – Framtíð matvælaframleiðslu

15.05   Matardiskur komandi kynslóða - Framtíðin

  • Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri
  • Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans 
  • Finnur Ricart Andrason, forseti ungra umhverfissinna
  • Steinþór Logi Arnarsson, formaður Ungra bænda

15:30   Samantekt Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra  

15.45   Þinglok

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum