Hoppa yfir valmynd
11. ágúst 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 82/2021 Úrskurður 11. ágúst 2021

Mál nr. 82/2021                    Millinafn:       Dalland

 

Hinn 11. ágúst 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 82/2021 en erindið barst nefndinni 12. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Dalland er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sé hefð sem eiginnafn karla eða kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn. Nafnið Dalland uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Dalland er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum