Hoppa yfir valmynd
12. maí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 651/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 651/2021

Miðvikudaginn 19. janúar 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni, móttekinni 4. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2019, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2018.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2018. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2018 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 1.155.586 kr. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu kröfunnar með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2019.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 4. desember 2021.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi óski eftir að mál hennar verði skoðað vegna kröfu Tryggingastofnunar frá árinu 2019 og að rökstuðningur muni berast síðar.

III. Niðurstaða

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2019, fylgdi kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í kæru kemur fram að sú ákvörðun sé kærð.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 4. desember 2021, en þá var kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar löngu liðinn.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

  1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
  2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Samkvæmt gögnum málsins leið meira en ár frá því að kæranda var tilkynnt um ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins þann 22. maí 2019 og þar til kæra barst úrskurðarnefndinni þann 4. desember 2021. Þegar af þeirri ástæðu skal kæru ekki sinnt, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Kæru er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum