Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkissjóður gefur út skuldabréf í evrum á 0% vöxtum

Ríkissjóður Íslands gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 117 milljarða króna. Skuldabréfin bera 0% fasta vexti og voru gefin út til 7 ára á ávöxtunarkröfunni 0,117%.

Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn tæplega 3,5 milljörðum evra eða rúmlega fjórfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af bönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Norður-Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum Citibank, Barclays og Deutsche Bank.

„Viðbrögð fjárfesta eru til marks um greiðan aðgang ríkissjóðs að alþjóðamörkuðum og endurspegla traust á styrk okkar og getu til þess að mæta efnahagslegum afleiðingum heimsfaraldursins. Með þessari lántöku treystir ríkissjóður en frekar stöðu sína til lengri tíma, en lausafjárstaða ríkissjóðs er mjög góð um þessar mundir,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.

Í útboðsferlinu bötnuðu kjör ríkissjóðs um 12 punkta frá fyrstu verðleiðsögn. Fjárfestahópurinn taldi vel yfir 150 aðila.

„Útgáfan nú er í samræmi við stefnu í lánamálum, en aukinni fjárþörf ríkissjóðs á næstu árum verður að hluta til mætt með erlendri lántöku eða með því að hagnýta gjaldeyriseign ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands. Markaðsaðstæður eru sérlega hagstæðar um þessar mundir eins og kjör ríkissjóðs nú bera með sér, " segir Bjarni Benediktsson.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum