Hoppa yfir valmynd
18. apríl 2023 Utanríkisráðuneytið

Könnun um heimsmarkmiðin meðal barna og ungmenna

Rebekka Karlsdóttir og Geir Finnsson forseti LUF. - mynd

Rebekka Karlsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði sjálfbærrar þróunar, sækir ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna í New York í júlí  fyrir hönd ungmenna á Íslandi þar sem landrýnisskýrsla Íslands verður lögð fram öðru sinni. Í skýrslunni verður meðal annars samantekt um áherslur barna og ungmenna á Íslandi og Rebekka kemur til með að ávarpa þingið til að koma rödd og áherslum ungmenna á framfæri.

Til þess að tryggja að samantektin endurspegli raunverulega áherslur ungs fólks á Íslandi hefur Rebekka útbúið könnun þar sem öllum á aldrinum 15–35 ára gefst kostur á að koma sínum áherslum á framfæri. Svörin verða notuð í samantektina og nýtast þau þannig til þess að þrýsta á íslensk stjórnvöld til að gera betur í málefnum ungs fólks á Íslandi í tengslum við innleiðingu heimsmarkmiðanna.

Aðeins örfáar mínútur tekur að svara könnuninni og hún verður hún opin til 21. apríl næstkomandi. Landssamband ungmennafélaga LUF „hvetur öll til þess að taka þátt og tryggja þannig sterka aðkomu ungs fólks að vinnu landrýnisskýrslunnar og innleiðingu stjórnvalda á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna þar sem rödd ungs fólks skiptir samfélagi okkar gríðarlega miklu máli,“ eins og segir í frétt á vef LUF.

Fundurinn í New York í sumar er svokallaður HLPF fundur – United Nations High Level Political Forum – og fer fram árlega. Hvert aðildarríki kynnir á nokkurra ára fresti landrýnisskýrslur – Voluntary National Review – þar sem farið er yfir stöðuna á innleiðingu heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun í hverju landi fyrir sig. Þessar skýrslur eru hluti af alþjóðlegri eftirfylgni með framgangi heimsmarkmiðanna og mælst er til þess að ríki skili að minnsta kosti þrisvar sinnum inn slíkum skýrslum á gildistíma heimsmarkmiðanna. Ísland skilaði seinast inn landrýnisskýrslu árið 2019.

Vinna við gerð skýrslunnar hefur staðið yfir hjá stjórnvöldum undanfarna mánuði þar sem ýmsir aðilar innan stjórnsýslunnar, atvinnulíf, borgarasamfélag og ungmenni koma meðal annars til með að segja frá sjónarmiðum. Ein opna í skýrslunni verður tileinkuð börnum og ungmennum. Ungmennaráð heimsmarkmiðanna mun skrifa eina blaðsíðu í skýrslunni þar sem áherslur barna koma fram og svo á sömu opnu verður blaðsíða fyrir áherslur ungmenna á Íslandi, eins og segir á vef LUF.

Rebekka hefur mikla reynslu af ýmsum sjálfboðastörfum og hagsmunabarátta stúdenta innan Háslóla Íslands hefur verið hennar helsti vettvangur að undanförnu þar sem hún gegnir nú starfi forseta Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Rebekka er með BA-gráðu í lögfræði en hefur einnig stundað nám í líffræði. Þá hefur hún einnig starfað sem landvörður og laganemi meðfram námi ásamt því að sinna stjórnarstörfum hjá Ungum umhverfissinnum og Náttúruverndarsamtökum Austurlands.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum