Hoppa yfir valmynd
13. desember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 501/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 501/2022

Þriðjudaginn 13. desember 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 12. október 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 4. október 2022 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 18. apríl 2022.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 30. september 2022, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá 1. apríl 2022. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 4. október 2022, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 18. apríl 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. október 2022. Með bréfi, dags. 13. október 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 3. nóvember 2022, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru greinir kærandi frá því að sonur hans hafi búið hjá honum frá fæðingu og kærandi hafi fætt hann og klætt í X ár. Barnsmóðir kæranda hafi flutt út 18. apríl 2022 en sonur þeirra hafi búið hjá kæranda síðan og hann hafi haft í hann og á. Barnsmóðir kæranda sé að notfæra sér að vera ein með forræði yfir syni þeirra og ætli sér að nota meðlagsgreiðslur fyrir eigin neyslu. Drengurinn sé hjá kæranda þar sem barnsmóðir hans sé ekki í ástandi til þess að sjá um hann. Þessu til rökstuðnings hafi hún verið erlendis í samtals tvo mánuði síðan í […] í þremur aðskildum neysluferðum. Kærandi viti að rétturinn sé hennar þar sem hún sé með fullt forræði og sé búin að færa lögheimili drengsins á heimili […], þrátt fyrir að hann búi enn hjá kæranda. Barnsmóðir kæranda hafi eingöngu gert þetta til þess að sækja um meðlagsgreiðslur. Kærandi geti ekki lýst því hvað honum finnist sorglegt að horfa upp á sambýliskonu til X ára ákveða að fara út af sporinu á fullorðinsárum. Hún sé greinilega ekki með hagsmuni sonar þeirra í huga þar sem hann finni vel fyrir fjarlægð og neyslu hennar frá því að hún hafi flutt út.

Kærandi óski eftir leiðbeiningum í framhaldi þessarar kæru þar sem hann vilji fá að vita næstu skref og hvort hann þurfi að notast við lögmann í þessu máli. Kærandi vilji einnig benda á að hann og barnsmóðir hans hafi búið saman í X ár og kærandi hafi fætt hana og klætt í öll þessi ár. Barnsmóðir hans hafi aldrei borgað krónu í leigu og hafi aldrei lagt mat á borðið fyrir son þeirra. Það hafi alltaf verið kærandi.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með syni þeirra frá og með 18. apríl 2022.

Tekið sé fram að Tryggingastofnun sé einungis milligönguaðili vegna samkomulags/úrskurðar um meðlag og að greitt sé fyrir fram fyrsta dag hvers mánaðar. Innheimtustofnun sveitarfélaga sjái annars alfarið um innheimtu meðlags.

Í 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um það að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Kveðið sé á um það í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 4. október 2022, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá 18. apríl 2022 með syni þeirra.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn barnsmóður kæranda um meðlag, dags. 30. september 2022, ásamt meðlagssamningi um að kærandi skuli greiða einfalt meðlag með barninu frá fæðingu til 18 ára aldurs. Einnig hafi fylgt með forsjárvottorð frá Þjóðskrá, auk faðernisviðurkenningar, dags. 28. nóvember 2008.

Það sé hlutverk Tryggingastofnunar að hafa milligöngu um greiðslu meðlags. Þær félagslegu aðstæður sem lýst sé í gögnum frá kæranda séu ekki á valdsviði Tryggingastofnunar til úrlausnar. Tryggingastofnun sé einungis milligönguaðili varðandi innheimtu á meðlagi og hafi ekki heimildir til að breyta meðlagsákvörðun sem sé í gildi á milli foreldra. Sá sem greiði kostnað vegna framfærslu barns geti krafist meðlags frá hinu foreldrinu en viðkomandi verði að fara með forsjá og barnið verði að eiga lögheimili hjá honum. Til að fara fram á breytingu á greiðslu meðlags geti foreldrar hvenær sem er breytt fyrri ákvörðun um meðlag með samningi sín á milli, svo framarlega sem greitt sé að minnsta kosti einfalt meðlag eftir þá breytingu. Verði sýslumaður að staðfesta slíka breytingu en slík breyting geti einnig verið í formi úrskurðar sýslumanns eða samkvæmt dómi. 

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun er komi fram í vottorði frá Sýslumanninum í Kópavogi um faðernisviðurkenningu og samþykki til greiðslu á meðlagi, dags. 27. október 2008, og staðfesting á forsjá og lögheimili, sbr. vottorð frá Þjóðskrá Íslands, dags. 7. júlí 2022. Þá liggi einnig fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag, dags. 30. september 2022.

Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá 18. apríl 2022. Ekki sé heimilt að greiða meðlag þegar meðlagsmóttakandi og meðlagsgreiðandi séu með sameiginlegt lögheimili, en samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá hafi kærandi verið með sama lögheimili og barnsmóðir hans til 18. apríl 2022. Að öðru leyti sé vísað til framangreinds um að Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi taki fram í kæru.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna. Í því samhengi skipti ekki máli hvort barn hafi jafna búsetu hjá báðum foreldrum sínum eða hvort greiðsla meðlags hafi farið fram fyrir það tímabil sem Tryggingastofnun hafi samþykkt milligöngu meðlags. Þá hafi nefndin sagt að ekki sé heimilt að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarki lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá stofnuninni, eins og til dæmis að gefa greiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil. Meðal úrskurða nefndarinnar varðandi þessi atriði megi nefna úrskurði í málum nr. 312/2017, 333/2018, 17/2019, 215/2019, 407/2019, 408/2019, 59/2020 og 76/2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 4. október 2022 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 18. apríl 2022.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla laganna, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við.

Í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er að finna heimild til að setja reglugerð um framkvæmd ákvæðisins og hefur reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga verið sett með stoð í því lagaákvæði, sbr. 70. gr. laganna. Fjallað er um heimild til að greiða meðlag aftur í tímann í 7. gr. reglugerðarinnar. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. er heimilt að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berast Tryggingastofnun. Þá segir í 2. og 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:

„Þegar meðlagsákvörðun, þar með talin ákvörðun um meðlag til bráðabirgða skv. 9. gr., og ákvörðun um framlag til menntunar eða starfsþjálfunar skv. 10. gr. er eldri en tveggja mánaða skal einungis greiða frá byrjun þess mánaðar sem umsókn og fylgigögn skv. 5. gr. berast, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi sem geta réttlætt greiðslur lengra aftur í tímann, allt að 12 mánuði. Með sérstökum ástæðum er m.a. átt við ef meðlagsmóttakanda hefur af einhverjum ástæðum verið ómögulegt að setja fram kröfu um milligöngu meðlagsgreiðslna án tafar.

Þegar sótt er um greiðslu aftur í tímann á grundvelli meðlagsákvörðunar sem er eldri en tveggja mánaða skal ennfremur gefa meðlagsskyldum aðila kost á að sýna fram á að meðlag hafi þegar verið greitt fyrir sama tímabil og sótt er um.“

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá 1. apríl 2022 með rafrænni umsókn þann 30. september 2022. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli faðernisyfirlýsingar sem staðfest var hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði, dags. 28. nóvember 2008. Samkvæmt yfirlýsingunni ber kæranda að greiða barnsmóður sinni meðlag frá fæðingu til 18 ára aldurs barnsins. Upphafstími milligöngu meðlagsgreiðslna miðaðist við 18. apríl 2022 en fyrir þann tíma var kærandi með sama lögheimili og barnsmóðir hans.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, sé þess farið á leit við stofnunina, í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í ákvæðinu, sem er grundvöllur ákvörðunar stofnunarinnar, segir nánar tiltekið að hver sá sem fær lögformlega ákvörðun um meðlag með barni geti snúið sér til stofnunarinnar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags samkvæmt ákvörðuninni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráðið verði af 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun beri að greiða meðlag í samræmi við meðlagsákvörðun. Þá telur úrskurðarnefndin að ákvæði 4. mgr. 63. gr. laganna feli í sér takmörkun á greiðslu meðlags aftur í tímann, þ.e. að ekki sé heimilt að greiða meðlag lengra en tólf mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem viðeigandi gögn bárust Tryggingastofnun. Í ljósi þess og með hliðsjón af þróun lagaákvæðisins og lögskýringargögnum telur úrskurðarnefnd velferðarmála að túlka verði heimild Tryggingastofnunar til greiðslu aftur í tímann samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar á þá leið að stofnuninni beri almennt að greiða aftur í tímann í samræmi við lagaákvæðið ef meðlagsákvörðun kveður á um það, sbr. úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 312/2017. Að mati nefndarinnar hafa lög ekki að geyma heimild til að setja frekari skilyrði fyrir greiðslu aftur í tímann. Þá telur úrskurðarnefndin að reglugerðarheimildin í 70. gr., sbr. 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar, feli ekki í sér heimild til að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarkar lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun.

Greint er frá því í kæru að kærandi og sonur hans hafi búið saman frá fæðingu hans. Kærandi hafi fætt hann og klætt í X ár en barnsmóðir hans hafi flutt út 18. apríl 2022. Hafi sonur þeirra búið hjá kæranda síðan, þrátt fyrir að lögheimili hans sé nú hjá móður og móðurbróður.

Eins og áður hefur komið fram liggur fyrir í máli þessu staðfest samkomulag Sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 28. nóvember 2008, sem kveður á um meðlagsskyldu kæranda með syni hans frá fæðingu til 18 ára aldurs. Fyrir liggur að lögheimili barnsmóður kæranda og sonar var flutt af heimili kæranda 18. apríl 2022. Með vísan til 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna vegna framangreindra málsástæðna þar sem fyrir liggur löggild meðlagsákvörðun sem kveður á um greiðsluskyldu meðlagsgreiðanda. Tryggingastofnun er ekki heimilt að líta fram hjá samkomulagi aðila um meðlag, staðfestu hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 4. október 2022 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 18. apríl 2022.

Hvað varðar beiðni kæranda um leiðbeiningar telur úrskurðarnefndin rétt að benda honum á að forsjá og meðlagi er hægt að breyta með samningi hjá sýslumanni eða með dómi. Kærandi getur leitað til sýslumanns til þess að fá frekari upplýsingar.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 18. apríl 2022, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum