Hoppa yfir valmynd
12. október 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 132/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 12. október 2021

Mál nr. 132/2021                  Endurupptökubeiðni

                                                Eiginnafn:     Zion (kk.)

 

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 15. september sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 62/2017 Zion.

Með úrskurði mannanafnanefndar frá 27. október 2017 í máli 62/2017 var umsókn um eiginnafnið Zion (kk.) hafnað. Niðurstaða nefndarinnar var að nafnið uppfyllti ekki skilyrði 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn, nr. 45/1996, sem kveður á um að ritháttur nýs eiginnafns skuli vera í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Í endurupptökubeiðninni er bent á að mannanafnanefnd hafi þann 1. júlí sl. samþykkt breytingar á vinnulagsreglum nefndarinnar og er óskað eftir að nefndin taki aftur fyrir umsókn um fyrrgreint nafn í ljósi breytinganna.

Þar sem ljóst er að umræddar breytingar á vinnulagsreglum mannanafnanefndar við túlkun á hefð hafa þýðingu í málinu fellst nefndin á að taka það upp á ný og fylgir nýr úrskurður í málinu hér á eftir sem fengið hefur málsnúmerið 132/2021.

Hinn 9. september 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 132/2021:

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Zion (kk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Zions, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn z er ekki notaður í íslenskri stafsetningu og ekki er ritað i á undan o í ósamsettum orðum í íslenskri réttritun.  Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Zion að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber einn karl, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna, sbr. 2. lið þeirra, eiginnafnið Zion. Sá er fæddur 2009. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Nafnið uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Zion er af erlendum uppruna. Það kemur fyrir í Hebresku biblíunni eða Gamla testamentinu sem örnefni sem getur vísað til borgarinnar Jerúsalem eða alls Ísraels. Nafnið er borið sem karlmannsnafn í Ísrael og víðar og tíðkast Zion sem umritun þess í ensku og fleiri málum. Nafnið telst því uppfylla skilyrði 4. liðar vinnulagsreglnanna.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Zion (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum