Hoppa yfir valmynd
2. janúar 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ráðherra skipar nýja stjórn Rannsóknasjóðs

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, hefur skipað nýja stjórn Rannsóknasjóðs, sbr. 4. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Skipunartími stjórnar er til 15. desember 2025. Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Stjórnarmenn eru tilnefndir af vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs.

Stjórn Rannsóknasjóðs 2022-2025 skipa:

  • Lárus Thorlacius, formaður, Háskóli Íslands.
  • Varamaður: Pétur Orri Heiðarsson, Háskóli Íslands.
  • Þóra Pétursdóttir, varaformaður, Háskólinn í Osló, Noregi.
  • Varamaður: Halldór Björnsson, Veðurstofa Íslands.
  • Ármann Gylfason, Háskólinn í Reykjavík.
  • Varamaður: Björn Þór Jónsson, Háskólinn í Reykjavík.
  • Þorgerður Einarsdóttir, Háskóli Íslands.
  • Varamaður: Sif Einarsdóttir, Háskóli Íslands.
  • Þórður Óskarsson, Moffitt Cancer Center, Bandaríkjunum.
  • Varamaður: Unnur Styrkársdóttir, Íslensk erfðagreining. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum