Hoppa yfir valmynd
4. október 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 333/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 4. október 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 333/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16080010

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. ágúst 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. ágúst 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 10. maí 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 10. maí 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi, Þýskalandi og Danmörku. Þann 6. júní 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 2. ágúst 2016 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 3. ágúst 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina við birtingu þann 16. ágúst 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 17. ágúst 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. ágúst 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. maí 2016 hafi kærandi upplýst að hann vilji alls ekki fara aftur til Þýskalands. Kvað hann afrit hafa verið tekin af fingraförum hans án hans vilja og að hann hafi alltaf viljað koma til Íslands. Þá kvað hann Þjóðverja hafa gefið það út að þeir muni senda alla frá [...] aftur til heimaríkis síns. Kærandi kveðst hafa verið í Þýskalandi í u.þ.b. þrjár til fjórar vikur. Fyrst um sinn hafi hann dvalið í skýli með um 50 öðrum einstaklingum en eftir að hann frétti af stefnu þýskra stjórnvalda og fyrirhuguðum flutningi aftur til [...] hafi hann ákveðið að yfirgefa skýlið og hafast við á götunni. Þar hafi hann upplifað mikla fordóma og aðkast af hendi ungra Þjóðverja vegna kynþáttar síns. Kærandi kvaðst ekki hafa viljað leita til lögreglu sökum stöðu sinnar.

Fram kemur í greinargerð kæranda að þýsk stjórnvöld hafi gefið það út að svokölluð [...], séu talin örugg ríki. Með þessari yfirlýsingu megi leiða líkur að því að hælisumsóknir ríkisborgara þessara ríkja séu ekki skoðaðar ofan í kjölinn með einstaklingsbundnum hætti. Vísað sé til 3. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna sem leggi bann við því að mismuna flóttamönnum eftir ættlandi. Fari stjórnvöld þá leið að meta umsóknir eingöngu eftir heimalandi umsækjanda leiði það til ómálefnalegrar málsmeðferðar byggða á staðalímyndum í stað sjálfstæðs mats á aðstæðum hvers og eins. Þá kemur fram að einstaklingsbundið mat á aðstæðum sé kjarni flóttamannahugtaksins og nauðsynlegt til að unnt sé að virða grundvallarreglu þjóðarréttar um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (non refoulement). Þá er vísað til þess að ECRE (European Council on Refugees and Exiles) hafi ítrekað beint þeim tilmælum að ríkjum Evrópusambandsins að hverfa frá notkun lista yfir örugg ríki, þar sem slíkar reglur leiði til staðalímynda og óvandaðrar málsmeðferðar.

Í greinargerð kemur fram að Þýskaland sé það Evrópuland sem taki við hvað mestum fjölda hælisleitenda. Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2016 hafi 61% heildarumsókna í aðildarríkjunum Evrópusambandsins verið skráðar í Þýskalandi eða 175.000 hælisumsóknir. Í greinargerð kæranda kemur fram að álag á hæliskerfi Þýskalands sé gríðarlega mikið. Vegna mikils fjölda þeirra sem sækja um vernd í Þýskalandi séu margar móttökumiðstöðvar afar fjölmennar og jafnvel yfirfullar. Ekki fáist fjármunir til þess að veita hælisleitendum viðeigandi og mannúðlega þjónustu auk þess sem engar samræmdar reglur séu um aðbúnað fólks í slíkum miðstöðvum. Oft sé aðbúnaður ekki eins og best verði á kosið, t.d. varðandi hreinlæti.

Hælisleitendur í Þýskalandi njóti takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar við hælismál sitt. Þeir hafi ekki sjálfkrafa aðgang að lögfræðiaðstoð heldur sinni góðgerðarfélög og frjáls félagasamtök slíkri þjónustu, en það sé bundið við ákveðin svæði í Þýskalandi og standi ekki alltaf til boða. Ekkert kerfi sé til staðar sem tryggi hælisleitendum aðgang að lögfræðiaðstoð áður en hælisviðtal fari fram. Hælisleitendur verði að greiða sjálfir fyrir lögfræðiþjónustu á fyrsta stjórnsýslustigi. Fari þeir með málið fyrir dómstóla geti þeir sótt um gjafsókn og hvort fallist verði á slíka beiðni veltur á því hversu líklegt dómstólnum þyki að fallist verði á hælisumsóknina, en sami dómstóll taki ákvörðun um gjafsókn og dæmi í hælismálinu.

Í greinargerð kæranda kemur fram að undanfarið hafi borist fréttir af auknum fordómum og andúð í garð flóttafólks og hælisleitenda í Þýskalandi. Árásir á heimili hælisleitenda hafi stóraukist og hægri öfgahópar fengið byr undir báða vængi. Ný rannsókn frá Háskólanum í Leipzig sýni að útlendingahatur hafi aukist samhliða auknum fjölda flóttafólks- og hælisleitenda. Þá fari stuðningur við þjóðernisflokkana AfD og PEGIDA sívaxandi og fram kemur að AfD sé nú fjórði stærsti flokkur landsins.

Þá er af hálfu kæranda vísað til tillagna Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir til að takast á við komu flóttamanna til Evrópu yfir Miðjarðarhafið. Þar sé biðlað til Evrópuríkja að beita fullveldisreglu Dyflinnarreglugerðarinnar, m.a. með það að markmiði að létta á því álagi sem sé á fáeinum ríkjum, þar á meðal Þýskalandi.

Í greinargerð kæranda er vísað til Dyflinnarreglugerðarinnar, d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Vísað er til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Þá sé á það bent að kerfisbundinn galli á aðbúnaði og meðferð hælisleitenda í aðildarríki sé ekki ákvörðunarástæða fyrir því að umsókn sé tekin til meðferðar í öðru aðildarríki en því sem ber ábyrgð skv. Dyflinnarreglugerðinni. Það fái stoð í greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, frá desember 2015. Þar komi meðal annars fram að nýlegir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu hafi skýrt að það sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á kerfislæga annmarka á málsmeðferð eða móttöku hælisleitenda í viðtökulandinu heldur skuli miða við það hvort veruleg ástæða sé til að ætla að hlutaðeigandi einstaklingur standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð í viðtökuríkinu sem samrýmist ekki 3. gr. mannréttindasáttmálans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Þýskalands.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla sem kunna að vera á meðferð hælisumsókna eða móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Þýskalandi.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, nóvember 2015)

  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015)

  • Germany 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)

  • Amnesty International Report 2014/15 - Germany (Amnesty International, 25. febrúar 2015)

  • Freedom in the world 2015 – Germany (Freedom House, 15. apríl 2015).

  • Upplýsingar af heimasíðu sem þýska útlendingastofnunin heldur úti: www.bundesregierung.de, Bundesamt für Migration und Flüchtlinge.

Fram er komið í málinu að kærandi hafi sótt um hæli í Þýskalandi. Í ofangreindum gögnum kemur fram að hælisleitendur í Þýskalandi eigi rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Hælisleitendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjandi um hæli synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga hælisleitendur möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (e. subsequent application) um hæli hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli kæranda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Hælisleitendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga hælisleitendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á hæli hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Eins og stendur er [...] ekki á lista yfir örugg ríki í Þýskalandi. Komið hefur til umræðu hjá þýskum stjórnvöldum að setja [...] á lista yfir örugg ríki og hefur lagabreytingartillaga þess efnis verið samþykkt af neðri deild þingsins (þ. Bundestag). Til að lögin gangi í gildi þarf efri deild þingsins (þ. Bundesrat) jafnframt að samþykkja tillöguna en það hefur ekki enn verið gert. Þeir hælisleitendur sem koma frá löndum sem eru á lista yfir örugg ríki hljóta flýtimeðferð í Þýskalandi. Þrátt fyrir að mál þeirra fari í flýtimeðferð þá hljóta þeir samskonar málsmeðferð og sambærileg mál hælisleitenda sem koma frá löndum sem eru ekki á fyrrnefndum lista.

Hælisleitendum í Þýskalandi er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu og eiga þeir rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Þýskalands brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda í Þýskalandi óttist hann tiltekna aðila eða að á honum verði brotið. Af gögnum verður jafnframt ráðið að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 20. júlí 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um fyrri hluta 2. mgr. 46. gr. a sem lítur að tengslum kæranda við Ísland. Engin bein umfjöllun er hins vegar um síðari hluta málsgreinarinnar er lítur að öðrum sérstökum ástæðum sem kunna að kalla á að íslensk stjórnvöld taki mál kæranda til efnismeðferðar. Kærunefnd hefur litið til þess að þrátt fyrir þennan annmarka fjallar ákvörðunin um þær ástæður sem gætu leitt til þess að mál yrði tekið til efnismeðferðar þó svo að stofnunin vísi ekki beint til síðari hluta 2. mgr. 46. gr. a. Kærunefnd telur því að þessi ágalli sé ekki svo verulegur að vísa beri málinu til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun eins og hér stendur sérstaklega á.

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Þýskalands með vísan til 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum