Hoppa yfir valmynd
16. júní 2023 Innviðaráðuneytið

Nýjar og endurskoðaðar áætlanir um framlög úr Jöfnunarsjóði

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Framlög Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts munu nema rúmlega 6,2 milljörðum kr. á árinu 2023. Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þess efnis sbr. reglugerð nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Um 60% af áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 3.747 m.kr. Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur 2.498 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 832 m.kr. í hvert sinn.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2022, sem gilda fyrir árið 2023. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2023.

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að úthlutun framlaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda skólaárið 2023-2024.

Úthlutunin, sem nemur 660,1 milljónum króna, fer fram á grundvelli 2. mgr. 1. gr. reglna um framlög vegna hljóðfæranáms á framhaldsstigi og söngnáms á mið- og framhaldsstigi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum