Hoppa yfir valmynd
22. júní 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 35/2020 Úrskurður 22. júní 2020

Mál nr. 35/2020                     Millinafn:       Haveland

                                               

 

 

 

Hinn 22. júní 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 35/2020 en erindið barst nefndinni 5. maí.

Í þessu máli er óskað eftir úrskurði um millinafnið Haveland en til vara um eiginnafnið Haveland (kvk.).

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • •nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama

Auk þess má mafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Haveland telst ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir þess vegna ekki skilyrði laga um millinöfn. Í lögum um mannanöfn er hins vegar einnig ákvæði, 3. mgr. 6. gr., um að „millinafn, sem víkur frá ákvæðum 2. mgr., er heimilt þegar svo stendur á að eitthvert alsystkini þess sem á að bera nafnið, foreldri, afi eða amma ber eða hefur borið nafnið sem eiginnafn eða millinafn.“

Samkvæmt orðanna hljóðan telur ákvæði þetta upp með tæmandi hætti hvaða nöfn koma til greina á þessum lagagrundvelli. Þrátt fyrir ótvíræðan skýrleika lagaákvæðisins þarf túlkun mannanafnanefndar á efnislegu inntaki þess að taka mið af fyrirliggjandi dómafordæmum um beitingu einstakra ákvæða mannanafnalaga, þ.m.t. með tilliti til þess hvort einstök ákvæði laganna samrýmast grundvallarreglum um friðhelgi einkalífs, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, eins og því ákvæði var breytt með 9. gr. stjórnarskipunarlaga, nr. 97/1995, sem og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög, nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu.

Við úrlausn þessa máls þarf því óhjákvæmilega að líta til óáfrýjaðs dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 24. apríl 2015 í máli nr. E-3607/2014 (millinafnið Gests) en þar var talið að eins og atvikum máls væri háttað ætti ekki að skýra texta 3. mgr. 6. gr. mannanafnalaga samkvæmt orðanna hljóðan heldur beita rýmri skýringu til samræmis við áðurnefnd ákvæði um friðhelgi einkalífs í stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þessu leiðir að mannanafnanefnd þarf í sínum störfum að beita sömu túlkunarreglum og dómstólar gera en líta verður svo á að þegar íslenska ríkið áfrýi ekki niðurstöðum héraðsdóms í málum af þessu tagi þá sé beiting lagareglna í óáfrýjuðum héraðsdómum sú sem nefndin ber að fara eftir.

Þegar litið er til fyrirliggjandi upplýsinga er ljóst að umsóknin uppfyllir ekki þau skilyrði sem mælt er fyrir um í 3. mgr. 6. gr. mannanafnalaga. Á hinn bóginn verður að líta til þess að í þessu máli liggja ríkar tilfinningalegar ástæður að baki nafnvali, en nafnberi óskar eftir að bera sem millinafn ættarnafn stjúpmóður föður síns. Litið er svo á, með vísan til úrskurða nefndarinnar í málum 67/2016 (Veigu) 96/2016 (Vídó), 16/2017 (Nínon), 29/2017 (Gasta) og 28/2019 (Jette), að úrskurðarbeiðandi hafi sýnt fram á með fullnægjandi hætti að hann hafi mikilvæga persónulega hagsmuni af því að nota ættarnafn stjúpömmu sinnar sem sérstakt millinafn. Af þessum ástæðum er talið réttlætanlegt að úrskurðarbeiðandi fái að bera millinafnið Haveland, sbr. 3. mgr. 6. gr. mannanafnalaga, eins og ber að túlka það ákvæði í ljósi grundvallarreglna um friðhelgi einkalífs.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Á grundvelli 3. mgr. 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn er fallist á beiðni XXX að nota millinafnið Haveland. Nafnið skal hins vegar ekki fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum