Hoppa yfir valmynd
3. maí 2011 Forsætisráðuneytið

Skipað í kærunefnd jafnréttismála til þriggja ára

Rit og skýrslur
Lagasafn

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað fulltrúa í kærunefnd jafnréttismála fyrir tímabilið 1. maí 2011 til 30. apríl 2014. Formaður nefndarinnar er Erla S. Árnadóttir hæstaréttarlögmaður. 

Kærunefnd jafnréttismála er skipuð samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 til þriggja ára í senn. Nefndarmenn eru þrír sem ráðherra skipar samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar, auk varamanna sem skipaðir eru með sama hætti. Áskilið er að nefndarmenn séu lögfræðingar og skal að minnsta kosti einn þeirra hafa sérþekkingu á jafnréttismálum. Formaður og varaformaður skulu uppfylla skilyrði um embættisgengi héraðsdómara.

Aðalmenn í kærunefndinni, auk Erlu S. Árnadóttur formanns, eru Björn L. Bergsson, hæstaréttarlögmaður, varaformaður og Þórey S. Þórðardóttir hæstaréttarlögmaður. Varamenn eru Grímur Sigurðsson hæstaréttarlögmaður, Guðrún Björg Birgisdóttir hæstaréttarlögmaður og Arnar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður.

Hlutverk kærunefndar jafnréttismála er að taka erindi til meðferðar og kveða upp skriflegan úrskurð um hvort brotið hafi verið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Niðurstöður kærunefndar sæta ekki kæru til æðra stjórnvalds. Úrskurðir kærunefndarinnar eru bindandi gagnvart málsaðilum en heimilt er að bera þá undir dómstóla.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum