Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 566/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 566/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100053

 

Beiðni [...]um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 8. júlí 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. mars 2021, um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 12. júlí 2021.

Þann 20. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun þann 26. október 2021 og stoðdeild ríkislögreglustjóra þann 27. október 2021. Athugasemdir bárust frá talsmanni kæranda þann 28. október 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eigi aðili máls rétt á því að fá mál sitt tekið upp á ný ef ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem hafa breyst verulega frá því ákvörðun var tekin. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 17. október 2020. Vegna þess tíma sem nú hafi liðið frá því að hann sótti um alþjóðlega vernd hafi atvik í máli hans breyst verulega frá því að úrskurður kærunefndar var birtur honum, því beri kærunefnd að endurupptaka mál hans.

Sé litið til stjórnsýsluframkvæmdar hafi afgreiðsla umsóknar í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis. Þar sem þessir 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn á Íslandi telur hann að stjórnvöldum sé nú skylt samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 17. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 21. október 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar sem barst þann 26. október 2021, kemur fram Útlendingastofnun líti ekki svo á að kærandi hafi tafið mál sitt. Stofnunin hafi hins vegar fengið upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra um að kærandi hafi neitað því að sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings og að ferðast af sjálfsdáðum án fylgdar stoðdeildar til viðtökuríkis. Þá hafi kærandi jafnframt neitað að undirgangast Covid-19 sýnatöku eða framvísa bólusetningarvottorði vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Það væri því mat stofnunarinnar að rekja mætti tafir á flutningi til athafna eða athafnaleysis kæranda sem hann bæri sjálfur ábyrgð á og vegna áskilnaðar stjórnvalda í Grikklandi um framvísun á neikvæðu Covid-19 vottorði eða bólusetningarvottorði hafi ekki verið hægt að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn og því geti tafir kæranda ekki talist óverulegar. Stofnunin teldi því að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir því að umsókn kæranda yrði tekin til efnismeðferðar væru ekki uppfyllt.

Í svari frá stoðdeild sem barst þann 27. október 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild frá Útlendingastofnun þann 20. júlí 2021. Þann 16. ágúst hafi verið haft samband við kæranda símleiðis en hann hafi talað góða ensku. Aðspurður hafi kærandi greint frá því að vilja ekki fara til Grikklands samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar og að hann ætlaði ekki í Covid-19 sýnatöku. Þar sem afstaða hans lá fyrir var ekki haft samband við hann aftur.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 28. október 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd þann sama dag. Í svari kæranda kemur m.a. fram að kærandi telji að þær tafir sem hafi orðið á afgreiðslu umsóknar hans séu ekki á hans ábyrgð. Ferðalög milli landa hafi sætt miklum takmörkunum og verið bundin ströngum skilyrðum vegna ráðstafana ríkja í tengslum við Covid-19 faraldurinn. Kærandi telji að hann beri ekki ábyrgð á þeim skilyrðum sem hafi verið sett, takmörkunum og þeirri óvissu sem Covid-19 faraldurinn hafi valdið. Þá vísar kærandi til þess að flutningur úr landi sé íþyngjandi ákvörðun og eðlilegt að hann sé mótfallinn því að snúa aftur til Grikklands. Jafnframt telur kærandi að stjórnvöld geti ekki gert þá kröfu að hann undirgangist líkamsrannsókn til þess að stjórnvöld geti sinnt verkefnum sínum, sem þau beri sjálf ábyrgð á, án þess að fyrir liggi þvingunarheimild í þeim tilgangi. Þá liggi ekki fyrir af gögnum málsins hvort kærandi hafi yfir höfuð verið boðaður í Covid-19 sýnatöku á einhverjum tímapunkti. Eðli máls samkvæmt þurfi ríkar kröfur að gera til nauðsynjar og lögmætis slíkra líkamsrannsókna en strangt bann sé lagt við þeim í 2. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. lög nr. 33/1944, nema fyrir liggi dómsúrskurður eða sérstök lagaheimild. Þá kunni sannfæring, menning og trúarlegar ástæður einstaklingsins að spila inn í sem nauðsynlegt sé að taka tilliti til. Ljóst sé að engin sérstök lagaheimild var eða sé til staðar til að framkvæma líkamsrannsókn á kæranda, í þeim tilgangi að flytja hann úr landi á grundvelli laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21070020, dags. 26. ágúst 2021 máli sínu til stuðnings og telur að aðstæður í því máli séu sambærilegar aðstæðum hans. Jafnframt telur kærandi að tilraunir stoðdeildar við undirbúning flutnings hans hafi verið afar ómarkvissar. Þá gerir kærandi athugasemd við það sem fram komi í tölvubréfi Útlendingastofnunar til kærunefndar um að kærandi hafi neitað að framvísa bólusetningarvottorði vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar en ekkert sé getið um það í svörum stoðdeildar og því óljóst á hvaða heimildum Útlendingastofnun byggi þá staðhæfingu.

Af svari frá stoðdeild má því ráða að þau samskipti sem áttu sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því almennt að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Þá má sjá af upplýsingum frá stoðdeild að síðustu samskipti stoðdeildar við kæranda hafi átt sér stað þann 16. ágúst 2021 en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 17. október 2021. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Kærunefnd telur að líta verði svo á að yfirlýsing kæranda á því að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki eitt og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum