Hoppa yfir valmynd
25. maí 2023

Mál nr. 131/2023 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 131/2023

Fimmtudaginn 25. maí 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. mars 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. nóvember 2021 og var umsóknin samþykkt 10. desember 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðað námskeið. Þann 27. janúar 2023 bárust skýringar frá kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á námskeiðið. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. janúar 2023, var kæranda tilkynnt að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju en það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. mars 2023. Með bréfi, dags. 29. mars 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. apríl 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið skráður á námskeið þann 11. janúar 2023. Hann hafi hringt inn til að tilkynna veikindi og verið sagt að það þyrfti að gera það skriflega. Kærandi hafi sent skrifleg fortöll með tölvupósti [13.] janúar 2023. Þrátt fyrir það hafi kærandi verið beittur viðurlögum.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. nóvember 2021. Með erindi, dags. 10. desember [2021], hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 4. janúar 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeiðið Markviss atvinnuleit en námskeiðið hafi farið fram þann 11. janúar klukkan 13:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Kæranda hafi verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á uppgefið netfang kæranda, með smáskilaboðum í farsíma og með tilkynningu á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi hvorki mætt á umrætt námskeið né boðað forföll.

Þann 13. janúar 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda. Kærandi hafi sagst ekki hafa getað mætt á námskeiðið Markviss atvinnuleit. Kærandi hafi óskað eftir því að fá að mæta á næsta námskeið. Með erindi, dags. 16. janúar 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á umrætt námskeið. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum en frekari skýringar hafi þó ekki borist Vinnumálastofnun. Með erindi, dags. 24. janúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi hvorki mætt né boðað forföll sín á umrætt námskeið.

Þann 27. janúar 2023 hafi Vinnumálastofnun borist frekari skýringar frá kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á námskeið. Kærandi hafi sagst ekki hafa mætt vegna veikinda en hann hafi þann 13. janúar sent tölvupóst og greint stofnuninni frá því. Í kjölfarið hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju. Með erindi, dags. 31. janúar 2023, hafi kæranda hins vegar verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hans.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Atvinnuleitendum beri samkvæmt 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa viðkomandi kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á námskeiðið Markviss atvinnuleit þann 11. janúar 2023 en áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á ,,Mínum síðum“ þar sem tímasetning hafi verið tilgreind sem og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið en þær lúti að því að kærandi hafi verið veikur og því ekki getað mætt. Þann 13. janúar 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda um forföll á umrætt námskeið, eða tveimur dögum eftir lok námskeiðsins. Að mati Vinnumálastofnunar geti slíkt ekki talist vera gild tilkynning um forföll. Vinnumálastofnun vísi í því samhengi til þess að kæranda hafi sérstaklega verið greint frá því að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta yrðu stöðvaðar.

Kærandi hafi í skýringum sínum til úrskurðarnefndarinnar vísað til símtals þar sem hann hafi tilkynnt stofnuninni að hann væri veikur og gæti því ekki mætt á námskeiðið. Hann hafi hins vegar fengið þær upplýsingar að forföll þyrftu að berast stofnuninni skriflega. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda sé óljóst hvenær umrætt símtal hafi átt sér stað. Slíkt hafi þó ekki áhrif á niðurstöðu stofnunarinnar, enda hafi kærandi fengið skýrar leiðbeiningar þess efnis að forföll bæri að tilkynna á netfangið [email protected]. Fyrir liggi að skrifleg tilkynning á umrætt netfang hafi ekki borist stofnuninni fyrr en þann 13. janúar 2023, eða tveimur dögum eftir að námskeiðinu hafi lokið.

Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt á námskeiðið Markviss atvinnuleit hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem var haldið 11. janúar 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var kærandi upplýstur um að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi hringt í Vinnumálastofnun og tilkynnt um veikindi. Kæranda hafi verið sagt senda skriflega tilkynningu sem hann hafi gert 13. janúar 2023.  

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi sendi Vinnumálastofnun tölvupóst á [email protected] þann 13. janúar 2023 eða tveimur dögum eftir að námskeiðinu lauk. Kærandi tilkynnti því ekki forföll með fullnægjandi hætti áður en námskeiðið hófst líkt og honum bar að gera. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

___________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum