Hoppa yfir valmynd
1. desember 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarafurðum frá Bretlandi fyrir tímabilið janúar til desember 2023

 

Laugardaginn 19. nóvember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi samkvæmt reglugerð nr. 1170/2022 fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2023.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 34.000 kg. á meðalverðinu 246 kr./kg. Hæsta boð var 851 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 19.000 kg. á jafnvægisverðinu 1 kr./kg.

 

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406 (**). Fjórar umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406 (**) samtals 29.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1170/2022 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 11.000 kg., til fjögurra fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

Annað kjöt, unnið eða varið skemmdum í vörulið 1602. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 49.800 kg. á meðalverðinu 75 kr./kg.  Hæsta boð var 499 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 18.400 kg. á jafnvægisverðinu 2 kr./kg.

 

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

4.000

Aðföng

5.000

Innnes ehf

6.000

Krónan ehf

4.000

Stjörnugrís ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406 (**)

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

2.000

Innnes ehf

3.300

KFC ehf

2.400

Krónan ehf

3.300

Stjörnugrís ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Innnes ehf

5.400

KFC ehf

8.000

Krónan ehf

 

Reykjavík, 28. nóvember 2022

Matvælaráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum