Hoppa yfir valmynd
27. mars 2025 Forsætisráðuneytið

1262/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

Hinn 27. mars 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1262/2025 í máli ÚNU 24110015.
 

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 15. nóvember 2024, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsinga­mál ákvörðun Vestmannaeyjabæjar að synja beiðni hans um aðgang að gögnum. Með erindi, dags. 5. nóvember 2024, óskaði kærandi eftir aðgangi að kauptilboði Mílu hf. í Eygló eignarhaldsfélag ehf. Beiðni kær­anda var hafnað með erindi, dags. 8. nóvember 2024, þar sem fram kom að með vís­an til mikil­vægra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna Mílu gæti sveitarfélagið ekki afhent kaup­til­boðið.
 

Málsmeðferð

Kæran var kynnt Vestmannaeyjabæ með erindi, dags. 27. nóvember 2024, og sveitarfélaginu gef­inn kostur á að koma á fram­færi umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Vestmannaeyjabær af­henti úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kær­an varðar.
 
Hinn 16. janúar 2025 var úrskurðarnefndinni sent afrit af erindi Vestmannaeyjabæjar til kæranda, dags. daginn áður. Í erindinu var aftur vísað til erindis kæranda frá 5. nóvember 2024 og kom þar fram að sala á Eygló eignarhaldsfélagi til Mílu væri í biðstöðu þar sem Samkeppniseftirlitið hefði hana til skoðunar. Úr­skurðarnefndin sendi Vestmannaeyjabæ erindi samdægurs og óskaði eftir að nefndinni yrði af­hent umsögn vegna hinnar kærðu ákvörðunar frá 8. nóvember 2024 og afrit af þeim gögnum sem kær­an lyti að. Nefndin ítrekaði erindið 4. febrúar 2025.
 
Með erindi, dags. 17. febrúar 2025, upplýsti Vestmannaeyjabær nefndina að á fundi bæjar­ráðs fjór­um dögum fyrr hefði tillaga stjórnar Eyglóar eignarhaldsfélags um að falla frá viðskiptum um sölu á félaginu ver­ið samþykkt. Hinn 16. mars 2025 bárust úrskurðarnefndinni svo þær skýringar að aldrei hefði borist skriflegt kauptilboð frá Mílu um kaup á Eygló eignarhaldsfélagi. Míla hefði haft samband við stjórn Eyglóar eignarhaldsfélags og lýst yfir áhuga á að kaupa félagið. Stjórnin hefði tekið beiðnina fyrir á stjórnarfundi og málið rætt í bæjarráði. Ákveðið hefði verið að sam­þykkja að selja Eygló eignarhaldsfélag til Mílu ef fyrirtækið væri tilbúið að greiða fyrir félagið það sem Vestmannaeyjabær hefði lagt í það. Allt hefði þetta verið munnlegt þar til drög að samn­ingi hefðu legið fyrir með forsendum sem ræddar hefðu verið. Þau drög hefðu verið samþykkt og end­an­legur samningur samþykktur í bæjarráði og bæjarstjórn. Eiginlegt kaup­tilboð væri sam­kvæmt framangreindu ekki til.
 

Niðurstaða

Mál þetta varðar beiðni kæranda um aðgang að kauptilboði Mílu hf. í Eygló eignarhaldsfélag ehf. Í hinni kærðu ákvörðun var beiðninni hafnað þar sem tilboðið hefði að geyma upplýsingar sem vörðuðu mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Mílu. Við meðferð málsins hjá úrskurðar­nefndinni kom hins vegar í ljós að hjá Vestmannaeyjabæ lægi ekki fyrir kauptilboð frá Mílu hf. þar sem samskipti um kaup á félaginu hefðu aðeins verið munnleg fram að þeim tíma sem samn­ingsdrög lágu fyrir.
 
Réttur almennings til aðgangs að gögnum tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Sam­kvæmt 20. gr. sömu laga er heimilt að kæra til úrskurðar­nefnd­ar um upplýsingamál synjun beiðni um að veita aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum. Hið sama gildir um synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er.
 
Vestmannaeyjabær fullyrðir að kauptilboð Mílu í Eygló eignarhaldsfélag liggi ekki fyrir hjá sveit­ar­félaginu. Þrátt fyrir Vestmannaeyjabæjar hafi gefið til kynna í hinni kærðu ákvörðun að gagnið lægi fyrir og yrði ekki afhent með vísan til hagsmuna Mílu hefur úr­skurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar staðhæfingu sveitarfélagsins að umrætt kaup­tilboð sé ekki til og gagn þar um liggi því ekki fyrir hjá Vestmannaeyjabæ. Með vísan til þess ligg­ur ekki fyrir synj­un á afhend­ingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga. Verður ákvörð­un Vestmannaeyjabæjar því stað­fest.
 

Úrskurðarorð

Staðfest er afgreiðsla Vestmannaeyjabæjar, dags. 8. nóvember 2024, á beiðni kæranda, […], um aðgang að kauptilboði Mílu hf. í Eygló eignarhaldsfélag ehf.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta