Hoppa yfir valmynd
26. júní 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 34/2018 Úrskurður 26. júní 2018

Mál nr. 34/2018                    Eiginnafn:     Bylur (kk.)

 

 

 

 

Hinn 26. júní 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 34/2018, en erindið barst nefndinni 18. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Bylur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Byls, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bylur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum